Vælur og svindlarar
Nokkrum dögum eftir að tveir útgerðarfurstar í Fjarðabyggð skrifa tregafullar greinar í sjómannadagsblað Austurgluggans um hversu vondar fyrirætlanir ríkisstjórnarninnar séu, berast okkur þær fréttir af útgerðarfurstum hinum megin á landinu að þeir hafi stofnað nýtt félag til að koma skipum og kvóta undan veðkalli.
Þ.e.a.s. þeir tóku skip og kvóta en skilja skuldir upp á 7,5 milljarða eftir hjá þjóðinni. Þeir láta skuldir sínar af yfirveðsettum kvóta falla á Landsbankann og þar með þjóðina en hirða verðmætin út úr félaginu.
Eins og það sé á skuldir okkar bætandi.
Nú finnst mér að ríkisstjórnin eigi að taka á sig rögg og hætta við fyrningarleiðina eins og hún hefur verið boðuð en innkalla allan kvóta á landinu þess í stað þann 1. september næstkomandi og þjóðnýta hann.
Gefa síðan veiðar frjálsar innan ákveðins heildarafla og umbuna vistvænum veiðarfærum. Línu og færi.
Markvisst er þeirri hugmynd lætt að þjóðinni að arðvænleg útgerð muni leggjast af ef þeir sem nú höndla með verðmætin fari á hausinn en í guðanna bænum ekki taka mark á því eða bendir eitthvað til þess að útgerðin sé vel rekin, þegar menn eru komnir í kennitöluflakk?
Það verður alltaf til duglegt fólk sem sækir sjó þótt kvótakóngar setjist í helgan stein.
Eða Steininn.
Athugasemdir (8)
Já, innkalla allan kvótann í ár! Eða setja heildarkvótan 1 kg á næsta fiskveiðiár innan núverandi kerfis og úthluta rest í nýju kerfi. Miðað við að 30% skerðing kvótans var möguleg milli ára fyrir nokkrum árum síðan er ekki hægt að réttlæta 99% skerðingu? Og koma á fót nýju kerfi. Sem ég er nokkuð viss um að eigi eftir að veita núverandi fiskveiðifyrirtækjum ansi stóran hluta aflaheimilda en það ætti að koma í veg fyrir þetta rugl um að eitthvað fyrirtæki "eigi" fiskinn, afþví það bókfærir hann þannig.
Þessi kvótaumræða er algjörlega fjarstæðukennd hjá ykkur, legg til að Björgvin skipuleggi málþing í Fjarðabyggð um þessi mál. Skal mæta og mæla gegn þessarri vitleysu allri sbr fyrningarleiðinni ofl....
Gefum okkur eiganda húsgagnaverslunar í Reykjavík sem opnar á hverjum morgni með opin kvóta á almenning. Hann getur rekið sitt fyrirtæki (í eðlilegu árferði) án þess að fá fyrirfram úthlutað kvóta á almenning. Ég styð að kvótinn verði þjóðnýttur. Sá sem ekki á kvóta getur ekki ætlast til að eiga hann 5% eða 100% eiga ekki að skipta máli.
Dude, kvótinn gufar ekki upp við það að verða innkallaður. Heldur fá fleiri tækifæri til að gera út, og reka sín fyrirtæki þá vonandi betur
Dude, þeir eru s.s. að stofna nýtt félag og selja því eignirnar afþví þeir höfðu ekkert betra að gera þann daginn. Auðvitað er þetta leið til að reyna að losna undan spilaskuldunum.
Er sjálf að spökúlera í að selja ab hf. húseign mína og skilja lánin eftir í Landsbanka. Ætli það sé ekki í lagi?
Þeir koma þessu ekkert undan veðkalli. Eina leiðin til að gera þetta er í samráði við þá sem halda á veðunum. Þetta hins vegar tryggir að öllum líkindum áframhaldandi starfsemi og það að fólkið sem vinnur við þessa útgerð missir ekki vinnuna. Eða styðurðu atvinnuleysi á Grundarfirði? Þeir sem eru fylgjandi fyrningarleiðinni eru reyndar ekki mjög meðvitaðir um afleiðingarnar og uppsagnirnar sem henni fylgja. Kalla þær staðreyndir hræðsluáróður. Ef þú tekur 5% af veiðiheimildum af útgerð án þess að láta bætur í staðinn þá þarf þessi útgerð minna af fólki Það dugir heldur ekki að segja að útgerðin geti keypt þetta aftur vegna þess að sá kaupandi sem er í bestu stöðunni til að ná í veiðhiheimildir sem hafa verið teknar með þessum hætti er sægreifinn sem seldi kvótann sinn fyrir nokkrum árum og á fullt af peningum Ég bara trúi því ekki að fullfrískt fólk eigi erfitt með að skilja þetta.



fyrir mér eru Soffanías Cecilsson Hf , í Grindarfirði ekkert öðruvísi en bankamennirnir sem vildu hagnast fljótt með öllum tiltækum ráðum, drifnir áfram af græðgi, um að gera að fella niður þeirra skuldir.