Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Verðum við tekin af lífi?
Published: 1:06 PM GMT, 27-06-2009

Samkvæmt skilgreiningu ýmissa er ég landráðamaður og kvislingur.  Leigupenni hef ég verið kallaður en ég ætla strax að taka það fram að ég hef aldrei fengið borgað fyrir að hafa einhverja ákveðna skoðun, þótt ég hafi verið svo heppinn á tímabili að vinna á blaði undir stjórn frábærs ritstjóra sem leyfði mér að viðra skoðanir mínar á síðum þess þegar ég vildi.  Á fullum launum.

Svo fékk ég eitt sumar greiðslur fyrir fasta pistla í Svæðisútvarpinu á Austurlandi en mér var ekki lögð nein lína af þeirri ágætu konu sem þá réði þar ríkjum.

Aukinheldur yrði ég lélegur talsmaður því ég segi bara það sem mér finnst og þá nokkurnveginn umbúðalaust þótt ég sé ekki frá því að hafa mildast eitthvað með aldrinum en ég reyni að sporna gegn því.  Ég vil verða pirrað gamalmenni.

En það er þetta með landráðin.  Þetta er helvíti stórt hugtak og mér skilst að landráð sé með alvarlegri glæpum sem fólk getur framið og því er oftast refsað með lífláti eða margföldum lífstíðardómum.  Svo pirrað gamalmenni vona ég reyndar að ég verði ekki, en látum það liggja milli hluta.

Komist þeir til valda og áhrifa sem kalla mig og aðra landráðamenn fyrir það að vilja Ísland í ESB, svo ekki sé minnst á þau okkar sem vilja samþykkja Icesave samninginn, megum við þá búast við því að verða skotin eða hengd hvar sem til okkar næst?

Eða er þessu fólki sem talar um landráð, svo heitt í hamsi að það er líklegt til að fara að vega pólitíska andstæðinga sína úr launsátri; er það komið í svo mikinn andspyrnu- og þjóðernisfíling að það fer að læðast um með alpahúfur á höfðinu og skiptast á skilaboðum á kaffihúsum?  Taka sér bústað í yfirgefnum hlöðum kannski og bíða um nætur eftir fallhlífaherdeild frá Noregi?

Eða láta þau sér nægja að ausa úr tómum viskubrunnum sínum á Facebook og dreyma um stóra þjóðernisflokkinn?

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (6)

IceSlave verður bara “betri og betri” eftir því sem að maður áttar sig betur á flóknum breskum lagakrókum.

Hér kemur fram að IceSlave opnar möguleika á frekari “leiðréttingum” í málum breskra innistæðueigenda þ.e. ef breska ríkið tekur þá ákvörðun að greiða öðrum innistæðueigendum Icesave, umfram þá sem þegar hafa fengið innistæður sínar greiddar upp að lögbundnu lágmarki (og að því marki sem breski tryggingarsjóðurinn hefur þegar greitt hærri fjáhæð eftir breskum reglum um ábyrgð tryggingarsjóðs og eigin mati). Getur breska ríkið beitt fyrir sig framangreindu ákvæði í málarekstri fyrir skilanefnd bankans eða jafnvel í málsókn á hendur Íslandi fyrir breskum dómstólum?

http://lugan.eyjan.is/2009/06/27/varnadarord-um-icesave/

Hér kemur þýðing á umræddu ákvæði nr 6.9 í IceSlave:

„Ísland mun ekki framkvæma neitt það sem myndi leiða til þess að kröfuhafar Landsbankans (eða einhver hluti þeirra) (þ.m.t., til að forðast allan vafa, kröfuhafar Landsbankans í London (eða einhver hluti þeirra)) hljóti meðferð sem fer gegn almennt viðurkenndum meginreglum þjóðaréttar eða Evrópuréttar varðandi meðferð kröfuhafa við slit .“

left by skattmann . 27-06-2009 6:59 PM

Ég er ekki frá því að ég verði þér samferða inn í Icesave- og ESB-kvislingahópinn. Verum viðbúin því að verða kálað af þjóðernisrembings- og einangrunarsinnum...

left by Systa . 27-06-2009 6:01 PM

Aldrei hef ég kallað þig "leigupenna", né ásakað þig um að lúta annarra skoðunum en þinna eigin. Né heldur tel ég þig til "kvistlinga" eða landráðamanna - en ég er SAMT ósammála þér hvað varðar ESB. Það kennir reynslan mér.

Ég hef hinsvegar - að ósekju - ásakað þig um ritskoðun, og biðst velvirðingar á því.

left by Ólafur Skorrdal . 27-06-2009 3:33 PM

Ji, já, fóklið mitt í Svíþjóð er bókstaflega skelfingu lostið yfir að vera innilokað í þessum skelfilega sambandi ...

left by alla . 27-06-2009 2:07 PM

Ég vil ekki fara inn í ESB en það hefur ekkert (alla vega minnst) með þjóðernistilfinningu að gera. Ég er hrædd við ofurbáknið auk þess sem mér heyrist ekki að fólk aðildarríkjanna sé ekki sérlega sælt með veru sína þar (t.d. Írar). EN - þú ert ekki sú sort sem ég kalla landráðamann. Í mínum huga eru þeir landráðamenn sem settu okkur á hliðina.

left by Kolla . 27-06-2009 1:44 PM

Ég skal semja við þig: Ef þú mótmælir IceSave, þá skal ég samþykkja að ganga í Evrópusambandið.

left by Doddi D . 27-06-2009 1:26 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER