Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Tilgáta
Published: 11:10 AM GMT, 24-10-2009

Hef verið að brjóta heilann um það hver gæti verið ástæða þess að á Íslandi eru hlutfallslega fleiri smitaðir af svínapest en á hinum Norðurlöndunum.  Margfalt fleiri.  500 manns af hverjum 100.000 hérna á meðan það er um og innan við 10 hjá frændum okkar og vinum.

Datt fyrst í hug að það væri kannski vegna þess að tveir þriðju hluti þjóðarinnar býr á höfuðborgarsvæðinu en það útskýrir ekki hátt hlutfall smitaðra í krummaskuðum úti um landið; t.d. eru margir smitaðir á Akureyri núna og hér á Austurlandi hafa margir veikst.

Erum við nánari en aðrar þjóðir; snertumst við meira eða erum við meiri sóðar og þvoum okkur sjaldnar um hendurnar?

Gæti verið hluti af skýringunni og því ætla ég að leggja fram þá tilgátu hér og nú að þetta sé vegna agaleysis þjóðarinnar.  Kæruleysis.

Ég held að smit berist hraðar og betur milli manna hérna vegna þess að við förum ekki eftir tilmælum heilbrigðisyfirvalda á sama hátt og agaðar nágrannaþjóðir okkar.  Þar með talinn handþvottur eða skortur þar á.  Líklega þversköllumst við of lengi við að fara heim og hvíla okkur og erum veik með einkenni inni á vinnustað í einhverja daga áður en við leggjumst og svo förum við of snemma á fætur aftur.  En smitum grimmt á meðan við erum úti á meðal fólks.

Enda erum við alltaf að bjarga verðmætum; við erum alltaf að fara á baujuvakt.  Græða peninga.

En þetta er bara tilgáta.

Dreifið á Facebook

Segðu (3) . Category: Samfélag

Athugasemdir (3)

Eða að við erum bara meiri svín en nágrannaþjóðirnar margtilvísuðu

left by Pétur Maack . 24-10-2009 1:27 PM

Mig grunar að þetta hafi eitthvað með greininguna að gera. Það má vera að hér á landi fari menn fram úr sér í greiningu (greinarmunur á svínaflensum og öðrum flensum) og kannski að hér séu miklu fleiri sem fara í greiningu. Reyndar er þessi greiningartækni afar vafasöm, enda skilst mér að greiningartækjunum fylgi sérstakir fyrirvarar þess efnis að viðkomandi greiningartækni sé ekki ætluð til þess að staðfesta að veiran sé til staðar.

left by Þórarinn Einarsson . 24-10-2009 1:20 PM

Ég hef verið að pæla í hvort þetta geti verið krepputengt. Langvarandi óvissa og kvíði veiki mótstöðu okkar. Þar sem ég vinn er það ástand búið að vara í 18 mánuði og er enn. Fæ ég uppsögn um næstu mánaðamót? Það skortir mjög á upplýsingar bæði hvað varðar kreppuna og svínaflensuna. Fyrir bragðið er maður aldrei í rónni, viðvarandi kvíðinn og kannski móttækilegri en ella.

left by Villi . 24-10-2009 12:28 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER