Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
Úti í horni
Published: 9:06 AM GMT, 26-06-2009

Við fengum Marshall-aðstoð eftir seinni heimsstyrjöldina þrátt fyrir að þjóðarbúið hefði hagnast verulega á stríðunu en við seldum stríðshrjáðum Bretum fisk gegn uppsprengdu verði.  Fyrir Marshall peningana endurnýjuðum við togaraflotann, byggðum nokkur frystihús og áburðarverksmiðju, keyptum landbúnaðartæki og reistum virkjanir.  Meðal annars.

Vissulega kostaði það mörg mannslíf að sigla með fisk til Bretlands á stríðsárunum en því hefur verið haldið fram að fleiri íslensk skip hafi farist vegna ofhleðslu en voru skotin í kaf.

Í stríðinu, á meðan Danmörk var hersetin af Þjóðverjum en við nutum þeirra lystisemda sem amerískur her getur fært samvinnuþýðu fólki, lýstum við yfir sjálfstæði og urðum helsta þý Bandaríkjanna í Evrópu.

Allar götur síðan við komumst í álnir, höfum við þegið meira en við höfum gefið og við erum nískust allra þjóða þegar framlög til þróunaraðstoðar eru annars vegar; við skákum í skjóli einhverrar sérstöðu sem væntanlega gengur út á hvað við séum frábær þjóð og eigum allt gott skilið fyrir ekki neitt.

Við færðum einhliða út landhelgi okkar og vildum ekki viðurkenna lögsögu Alþjóðadómstólsins í þeirri deilu við Breta og Þjóðverja og fyrir vikið eigum við ekki greiðan aðgang að þeim dómstóli teljum við á okkur brotið.

Nýasta afrek okkar á alþjóðavettvangi er að félfletta um hálfa milljón Breta og Hollendinga auk slatta Þjóðverja.  Að vísu bendir margt til þess að það hafi verið gert af fáum, gírugum einstaklingum en íslenska ríkið - 1944 fyrir sjálfstæða Íslendinga - annað hvort kaus að horfa á það með blinda auganu eða þótti framtakið bara sniðugt.

Fyrir þau ykkar sem nú fara að vitna í EES samninginn og kenna honum um ófarir okkar, vil ég benda á að í honum er að finna lágmarks ákvæði og íslenskum yfirvöldum var heimilt að herða ákvæðin um eftilit með fjármálastofnunum.  Það gerðu þau ekki en létu lágmarkið duga.

Það var sumsé með formlegu samþykki þínu og mínu sem útrásarvíkingarnir stofnuðu til þeirra skuldbindinga sem nú kallast Icesave og falla á okkur á einn eða annan hátt.

Ríkið er jú við og við erum nokkurnveginn búin að mála okkur út í horn og málnining þornar ekki í bráð.

Mér sýnist við geta valið um það að samþykkja Icesave samkomulagið eða eiga á hættu að verða útskúfuð úr samfélagi þjóðanna; kannski ekki jafn hastarlega og Norður Kórea eða Kúba en ég bara nenni ekki að búa hér við lyfjaskort eða vöruskort eða eldsneytisleysi eða það skerta ferðafrelsi sem gjaldeyrishömlur og höft valda.

Eina ferðin sem okkur býðst þá, er tímaferðalag aftur til 1900.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (14)

Hluti Marshall-fés var varið til kaupa á togurum og þótt okkur kunni að þykja Írafossvirkjun minniháttar í dag, þótti hún það ekki þegar hún var reist. Láxárvirkjun var líka reist fyrir Marshall-peninga. Hluti af þessum peningum var settur í lánasjóð sem rann svo inn í Byggðastofnun þegar hún varð til. Við getum því, með þrætubókarlist, teygt þessa aðstoð allt til dagsins í dag.

left by Björgvin Valur . 28-06-2009 12:33 PM

Er þetta hugarfarið hjá evrópusinnum? Skömm á eigin þjóð og fullkominn undirgefni gagnvart erlendum ofríkisþjóðum? Enginn þjóð í heimi var svo aum að hún náði ekki að fjölga sér í hundruðir ára - nema sú íslenska. Sú uppbygging sem átti sér stað á síðustu öld var vegna þess að þjóðin tók sín mál í eigin hendur, stólaði á sjálfa sig, varði sína hagsmuni gegn ásælni nýlendukúgarana í evrópu. Þú getur talað um það af lítilsvirðingu og með skömm, en það var ekki hugarfar undirgefni og aumingjaskapar sem færði þessa þjóð frá því að vera sú fátækasta í evrópu, í það að vera ein sú ríkasta (sem hún enn er, þrátt fyrir allt).

En það er augljóst að þrælslundinn og afdalamennskan á sér enn málssvara á Íslandi. Þeir málssvarar eru enn tilbúnir að beygja sig og bukta fyrir nýlendukúgurunum í von um að fá brauðmola og kærkomna lausn frá því að þurfa stjórna sér sjálft.

Að lokum legg ég til að þú ryfjir upp sögukennsluna frá því í barnaskóla, augljóst að þú hefur öllu gleymt í þeim efnum, eða þá aldrei verið vakandi í tímum.

left by bjarni . 28-06-2009 12:20 PM

Við fengum Marshall-aðstoð eftir seinni heimsstyrjöldina þrátt fyrir að þjóðarbúið hefði hagnast verulega á stríðunu en við seldum stríðshrjá&et Þetta er ekki rétt. Togara- og bátaflotinn var endurnýjaður ( af nýsköpunarstjórninni )með þeim gjaldeyri, sem okkur hafði áskotnast í stríðinu ( stríðsgróðinn ). Marshallféð ( sem við áttum engan rétt á )fór í byggingu áburðarverksmiðju og minniháttar virkjun.

left by Þórhallur Ólafsson . 28-06-2009 12:15 PM

Allir innistæðueigendur Kaupþings í Þýskalandi fengu allt sitt endurgreitt án þess að svo mikið sem ein evra félli á íslenskan almenning. Því er fráleitt að draga það mál í þessa umræðu.

left by Jón Heiðar . 26-06-2009 7:47 PM

Viltu ekki sundurliða fyrir mig hvernig nákvæmlega synjun alþingis á þessum Icesave samningi leiðir til vöruskorts á Íslandi? Mig grunar að þú bullir. Þeir einu sem hafa hótað slíkum afleiðingum eru Íslendingar í stjórnarliðinu, ekki hinir meintu kúgarar í útlöndum. Málið snýst ekki lengur um annaðhvort þennan Icesave samning eða ævarandi dauða og eyðileggingu ella. Við eigum að semja um Icesave en þessi tiltekni samningur er jafn skelfilegur og hann getur mögulega verið.

left by Bjarki . 26-06-2009 2:37 PM

Hér er á ferðinni sama afneitunin og í "góðærinu". Þetta reddast allt ef við skrifum undir. En það reddast ekki neitt ef við skrifum undir. Þar liggur feillinn. Menn segja mæðulega einsog þeir seú að horfa á beyglu á bílnum sínum sem þarf að laga þetta. Ætli ég verði ekki að laga þetta sjálfur, ég vil ekki missa bónus hjá tryggingunum. Þetta er góðærisruglfáviskuóraunsæisö

left by Doddi D . 26-06-2009 1:05 PM

Heyr heyr þetta er allt saman hárrétt hjá þér....

left by Skúli Þór . 26-06-2009 10:56 AM

Hvað heldur þú að við getum flutt inn mikið af lyfjum, mat eða eldsneyti ef við eigum að látahelminginn af útflutningi okkar í afborganir lána og hinn í nauðsynleg hráefni fyrir iðnað og fiskveiðar? Vöruskort verður ekki komist hjá hvor leiðin sem verður farin, heldur er spurningin hvort við treystum á að hann vari styttra ef við förum á hausinn í dag eða eftir nokkur ár. Það er ekkert tilfelli að enginn af þeim sem vilja samþykkja þennan samning hafa kíkt á hvernig eigi að borga fyrir hann.

Hvað varðar það hvort samningarnir hafi verið gerðir með okkar formlega samþykki að þá er það oft þannig þegar svindlað er á fólki. Ef ég sel þér falska vöru geri ég það með þínu formlega samþykki en það breytir því ekki að ábyrgðin á hinni fölsku sölu er mín og ekki þín. Það var svindlað á okkur og við erum í fullum rétti til að reyna að koma í veg fyrir að það svindl eyði byggð í landinu.

left by Héðinn Björnsson . 26-06-2009 10:13 AM

Við hugsum þetta á svipuðum nótum. kv. B

left by Baldur Kristjánsson . 26-06-2009 10:12 AM

Amen, bróðir

left by Pétur . 26-06-2009 10:06 AM

Þetta hlýst af því að hafa haft glæpamenn í forsvari fyrir þjóðina - og helmingur þeirra er enn við stjórnvölinn. Þess vegna er þetta samkomulag óforsvaranlegt í alla staði.

left by TH . 26-06-2009 10:00 AM

Eins og venjulega,,beint í mark. Mér er oft hugsað til Evrópu í lok stríðsins þegar ég heyri einhvern á 5M kr. bíl væla yfir ástandinu.Þessi ófdekraða þjóð á mikið ólært. Rétt eins og frekur krakki. takk..... P.S. skil ekki athsemdina um hvað þetta sé erfitt??

left by Jón . 26-06-2009 9:59 AM

Eins og vanalega er Hr.Dómsdagur bjartsýnn

left by Magni Þór . 26-06-2009 9:57 AM

Skemmtilegt að lesa bloggin þín en ömurleg aðferð við að kommenta. Of mikill lestur á leiðbeiningum. Gerðu einfaldara ogþá færðu fleiri heimsóknir. Summan t.d. er alltof neðarlega, kona sér hana ekki fyrr en sagt er að villa sé...

left by rósa . 26-06-2009 9:54 AM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER