Svindlarar
Auðvitað á að birta nöfn þeirra fyrirtækja sem eru að fara framhjá gjaldeyrishöftunum. Ekki svo að skilja að ég sé sammála því að hafa hér gjaldeyrishöft en það er augljóst að árangur af þeim verður enginn á meðan útflytjendur svindla.
Það þýðir að almenningur hefur það skítt lengur. Á meðan gjaldeyrir skilar sér ekki til landsins, verður erfiðara að flytja inn nauðsynjar.
Þar til annað kemur í ljós, ætla ég að leyfa mér að álykta sem svo að þarna séu á ferðinni álfyrirtækin og útgerðarrisarnir - kvótagrátkórinn, handhafar auðlindanna okkar - enda ekki öðrum til að dreifa í hópi tuttugu stærstu útflytjenda sem seðlabankastjóri ætlar að bjóða til spjalls og kaffis.
En endilega birtið nöfn þessara fyrirtækja.
Athugasemdir (2)
Ég verð reiðari og reiðari með degi hverjum degi sem líður án þess að tekið sé á "glæpahyskinu" sem hér ræður för í viðskipta og því miður stjórnmálalífi á allt of mörgum stöðum.



Las í Fréttablaðinu fyrir viku að öll álfyrirtæki á Íslandi væru undanþegin nýlegum reglum um gjaldeyrisviðskipti. Daginn áður var talað um í sama blaði að FME ætlaði sérstaklega að kanna hvort álfyrirtækin hefðu brotið lög um gjaldeyrisviðskipti. Ekki var farið neitt nánar út í þessa mótsögn svo maður er engu nær. Eins og venjulega.