Stjórnmálamaður ehf
Þessi tilkynning frá Samfylkingunni er góð svo langt sem hún nær en það vantar ennþá þýðingarmestu upplýsingarnar, nefnilega þær um hvaða frambjóðendur stofnuðu utanum sig einkahlutafélög til að fjármagna prófkjörsbaráttu.
Og þá ekki bara frambjóðendur Samfylkingarinnar, heldur allra hinna flokkanna líka.
Mér þætti nefnilega betra að vita hvort fólkið sem nú er að leggja á mig hærri skatta eða bara þiggur laun af sköttum mínum og annarra, hafi reynt að koma sér undan því að borga skatt af styrkjum í prófkjörunum með því að stofna téð félög.
Nennir ekki einhver duglegur blaðamaður að kanna þetta alminilega?
Athugasemdir (7)
@Krati Skjóta boðbera slæmra frétta, þetta er rétt hjá síðuhöfundi. Klárum þennan pakka svo kverúlantarnir geti ekki dregið þetta upp seinna meir. Segja hvernig málin hafa verið og af hverju mönnum þótti það betra að vinna þetta svona. Liðið sem öskrar spilling fær þá sitt núna og getur verið glatt í vænissýki sinni, en þegar kemur að næstum kosningum þá verða þessi mál búin. Ekki gott að hafa svona hangandi yfir þingmönnum, því best að hreinsa þetta út.
Björgvin þú ert sá alleiðinlegasti í Bloggheimum það er skömm fyrir okkur Samfylkingafólk í Reykjavík að þurfa að dröslast með svona mann eins og þig í flokknum. Farðu nú að finna þéer vinnu, ertu ekki enn á framfæri hins opinbera ?
Og mest frá Baugi og félögum. Ertu hissa? í alvöru? Fylgdist þú ekkert með hverjir fluttu varnarræðurnar?
Það hefur verið gert Björgvin og þetta hefur verið skoðað ofan í kjölinn.. eftir léttar æfingar á ja.is og síðan í fyrirtækjaskrá sýnist mér allflestir eiga einhvers konar ehf eða sjóð, til að borga ekki skatta af!!!!!!!
" það vantar ennþá þýðingarmestu upplýsingarnar, nefnilega þær um hvaða frambjóðendur stofnuðu utanum sig einkahlutafélög til að fjármagna prófkjörsbaráttu."
Góður punktur, Björgvin Valur. Við bíðum spennt. Þingmenn Samfylkingarinnar láta tæplega á sér standa að upplýsa. "Allt upp á borðið" er boðorð dagsins :)Já það er erfitt að verja lygina sem lofað var. Gegnsæið, endurnýjunina, nýju úrræðin,nýtt verklag við mannaráðningar, hærra gengi, lægri vexti, verðtryggingu burt. Allt sem eftir stendur er gömul lúin kona sem endurtekur "dementískt": ESB er lausnin. "Við höfum engar lausnir, eða frumkvæði. Við gerum bara allt eins og þeir sem þið vilduð burt. Er ekki miklu betra að við svíkjum ykkur heldur en hinir? Eru ekki styrkirnir til okkar miklu saklausari en til hinna?"



ég er ekki blaðamaður, en ég er óskaplega dugleg ;)
Varstu ekki að kalla eftir einhverju svona: http://tidarandinn.is/profkjorsfelog ??