Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Stigvaxandi pirringur
Published: 8:06 PM GMT, 13-06-2009

Ég vil borga hærri skatta ef það verður til þess að hægt sé að hlífa þeim við niðurskurði sem eru sjúkir, fatlaðir eða gamlir.  Svo veit ég að er um fleiri.

En um leið geri ég þá kröfu að þeir sem settu þjóðina á hausinn, verði dregnir til ábyrgðar hiksta- og fumlaust og röfl í grátdrengjum þeirra látið sem vindur um eyru þjóta.

Það skiptir mig engu hvar í flokki hinir seku kunna að standa og mér er sama hvort þeir eru eða voru fjársýslumenn, stjórnmálamenn, embættismenn eða eitthvað annað; ábyrgð skal útdeilt af fullum þunga, rétt eins og skuldabyrðum er dreift á herðar saklausra.

Sumsé; ég skal borga eða gangast í ábyrgðir en með þeim fyrirvara að hvergi verði veittur afsláttur þegar kemur að endurgreiðslu hinna seku.

Svo veit ég svei mér ekki hvað á að gera við svitastorkna tólgarstrumpinn sem var bankastjóri Landsbankans og hæstaréttarlögmanninn hans; ég hef ekki hugmynd hvort díllinn sem nú er til umræðu í bloggi og öðrum minni fjölmiðlum er löglegur en mikið svakalega er hann ógeðfelldur.

Sem þarf ekki að koma á óvart sosem.

Maður verður sífellt reiðari.

Og auðvitað er þetta allt Sjálfstæðisflokknum að kenna.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (7)

Það góða er að vonandi er tólgarstrumpurinn orðin taugahrúga og skelfur í hvert skipti sem dyrabjallann hringir eða ókunnugir menn mæta á vinnustaðinn hans.

left by Friðrik Sig . 14-06-2009 9:44 AM

Það er ein huggun harmi gegn. Þegar Eva Joly verður búin að fara höndum um Tólgarstrumpinn verður ekki mikið eftir af tólginni...

left by Systa . 14-06-2009 1:20 AM

Sammála. Fín ritgerð. Niðurlagið er samt einfeldningslegt. Ekki það að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki brennimerktur sektinni. Hinn almenni borgari er samt örugglega almennt háleitari en þetta og kærir sig ekkert drullukökukast milli stjórnmálafylkinga. Ef það er músagangur í búrinu mínu, er mér andskotans sama um innbyrðis virðingarröð þeirra kykvenda. Þær hafa allar farið í ostinn minn.

left by Fimmta valdið . 13-06-2009 11:05 PM

Réttlæti, réttlæti, réttlæti. Annars verður ekkert samfélag hér sem borgar skuldirnar.

left by Ásta B . 13-06-2009 10:48 PM

Réttlætið þarf að koma fyrst síðan endurreisnin. Annars gengur þetta aldrei upp. Af hverju skila stjórnvöld þetta ekki?

left by TH . 13-06-2009 10:32 PM

Mikið skelfing er ég sammála þér.

Og það er auðvitað bull að ríkisstjórnin sé ekki að skera niður. Hún er einungis að stíga varlega til jarðar þar sem sjúkir og aldraðir eiga í hlug. Eins og jafnaðarmannastjórn á að gera.

left by alla . 13-06-2009 10:01 PM

Við erum mörg til í að borga hærri skatta. Það afsakar þó ekki þann aumingjaskap ríkisstjórnarinnar að geta ekki skorið niður um a.m.k. helming þarfarinnar. Suðurstrandarvegur, tónlistarhús, varnarmálastofa, aðstoðarmenn þingmanna, höfn við Bakka........... Úr nógu er að velja öðru en að herða að fátækum. - Það er ótrúlegt hvað pólitíkusar okkar eru lélegir. Skelfingin úr Sjálfgræðis- og Framsóknarflokkunum víkja og við fáum í staðinn fólk sem þorir ekki að takast á við vandamál.

left by Magnús . 13-06-2009 9:54 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER