Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
Salthússmarkaðurinn
Published: 4:06 PM GMT, 16-06-2009

Ég ætla að plögga þorpinu mínu, Stöðvarfirði eða markaðnum sem er þar í fyrrum salthúsi og er kallaður Salthússmarkaðurinn.  Þar má kaupa allan andskotann; mat, handverk, list, föt; alveg helling af flottu dóti.

En þetta er ekki bara markaður.  Í stórum sal hefur verið komið upp ljósmyndasýningu og inn í gömlu saltgeymslunni rúllar myndband af því hvernig saltfiskur verður til.  Allt frá því fiskur er dreginn úr sjó og í gegnum vinnsluferlið og borinn fram á diski.  Sniðugt.

Ef þið eigið leið um Stöðvarfjörð og eruð búin að fara í Steinasafnið, endilega kíkið á Salthússmarkaðinn (þið þekkið hann á fánaborginni).

Restið svo í kaffi á Brekkunni.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (6)

Ég held að Maltverjar uni hag sínum vel í ESB. Þeir koma skoðunum sínum á framfæri vandræðalaust og þeirra sérfræðingar gegna valdamiklum stöðum í sambandinu. T.d. er yfirmaður sjávarútvegsmála frá Möltu.

left by Björgvin Valur . 17-06-2009 12:09 PM

Hehe já sennilega...en í fullri alvöru, ég veit að þú ert búinn að kynna þér þetta og ert eftir það alveg harður á því að við eigum að ganga í Evrópusambandið, hvernig gengur löndum eins og Möltu og þjóðum sem hefðu svona svipað vægi og við að koma sinni skoðun á framfæri og fá einhverju ráðið um það hvernig hlutunum er komið fyrir ?

left by Magni Þór . 16-06-2009 10:32 PM

Ef þú vilt koma með svona samlíkingar, gætum við sagt að núna sé Ísland Dritvík Evrópu.

left by Björgvin Valur . 16-06-2009 10:22 PM

Smá spurning handa þér...Stöðvarfjörður gleymdist af yfirvöldum Fjarðabyggðar við sameininguna...ég fæ alltaf á tilfinninguna að Ísland verði Stöðvarfjörður Evrópu ef við göngum í Evrópusambandið, hvaða skoðun hefur þú á því ?

left by Magni Þór . 16-06-2009 10:15 PM

Biðst þúsund sinnum afsökunar. Það er ófyrirgefanlegt að gleyma Gallerí Snærós.

left by Björgvin Valur . 16-06-2009 7:10 PM

Þú mátt ekki gleyma Gallerí Snærós....... Þar er líka gott að droppa við.

left by Binna . 16-06-2009 7:08 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER