Smekkleysa
Ég skil vel að Steingrími J. blöskri auglýsingarnar sem nú dynja á okkur og er beint gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Þær eru nefnilega með eindæmum ósmekklegar.
Umhverfisráðherra fer að lögum og vandar sig og ekki virðist veita af, nú þegar í ljós er komið að línurnar áttu að liggja þvert um vatnsverndarsvæði Reykjavíkinga. Það hefði orðið skemmtilegt, eða hitt þó heldur, ef þeir hefðu farið að lepja baneitraða galvaníseringuna sem losnar utan af möstrunum eða sull berst út í jarðveginn þegar verið er að vinna við þau.
En kannski skiptir það engu máli þegar verið er að bjarga pólitískum brókum Árna Sigfússonar.
Ég skil vel að Suðurnesjamenn vilji fá eitthvað að gera en það má ekki ráðast í það að hætti Árna og félaga; skjóta fyrst og spyrja svo kannski.
Svo verður hann örugglega búinn að selja raflínurnar, álverið og höfnina fyrr en varir.
Athugasemdir (6)
Sæll Björgvin. Má ég benda þér á að það er ekkert nýtt í að línurnar eigi að fara um vatnsból höfuðborgarbúa. Þær gera það nú þegar. Umfjöllun um þetta má finna í umhverfismatinu fyrir línurnar. Heilbrigðisyfirvöld hafa fjallað um málið á ýmsum stigum og enginn farið á límingunum vegna þess - fyrr en í fréttum á stöð 2, eftir að umhverfismatinu og skipulagsbreytingum lauk!
Það er af nógu að taka í þessu. Og samkvæmt lögum, má rífa turninn í Borgartúni einmitt vegna þess að hann skyggir á vitann. Mér finnst það ætti að rífa hann.
Svandís stendur sig afar vel.
Ein framkvæmd þar sem menn styttu sér leið framhjá reglum eða réttum leyfum var bygging glerhallarinnar í Borgartúni. Eftir að hún var upp komin áttuðu menn sig á að hún blokkerar innsiglingargeisla vitans á Sjómannaskólanum! Var þarna einhver "Árni Sigfússon" að keyra málið áfram? Hvað klikkaði þar? Hefur einhver sætt ábyrgð?
Það veit ég ósköp vel en það leggur enginn svoleiðis lagnir lengur. Einu sinni voru vatnslagnir úr blýi og sumstaðar eru stofnæðar úr asbesti. Ég hef fengið eitrun af galvani og óska engum þess.
Í neysluvatnslögnum landsmanna Reykvíkinga þ.á.m. eru tugir ef ekki hundruðir kílómetra af galvaniseruðum rörum. Engin furða þó það séu alltaf einhverjir að deyja



Gleymdi samt að geta þess að ég er sammála þér um ósmekklegheit þessara auglýsinga ....