Sauðir
Ég vissi það alltaf. Það voru Geir og Davíð sem breyttu yfirvofandi þrengingum í hamfarir með heimsku sinni, leti og almennum bjánagangi. Þeir klúðruðu öllu sem þeir komu nálægt í aðdraganda hrunsins.
Eins og við var að búast af þeim kumpánum.
Athugasemdir (9)
Mér sýnist Björgvin vera hér með stutta samantekt á þeirri niðurstöðu sem kemur fram bók Guðna Th. - þeir sem vilja málefnalegar langlokur þræla sér bara í gegnum bókina.
Ég kann hins vegar vel við þessa hnotskurn sem er á kjarngóðri íslensku sem allir skilja - þeasBjörgvin - hnyttinn penni eins og þú skaust alveg yfir markið þarna. Þetta er ekki málefnalegt.
Það telst víst málefnalegt að horfa framhjá því sem Davíð og Geir sannarlega gerðu og klúðruðu og fabúlera í staðinn um það hvað einhver annar hefði gert í sömu stöðu. Þannig að þegar þeir skitu ekki bara á sig heldur okkur öll þá er það OK vegna þess að einhver annar hefði hugsanlega kannski gert það sama.
Það er ekki hægt að vera málefnalegur nærri Sjálfstæðisflokknum.
gott hjá þér, frekar fúlir sjallar í tjásunum hér að ofan, EF seðlabankastjóri hefði vitað hvað var í vændum hefði hann látið KB hafa 300 milljarða króna & 300 milljarða efra gegn haldlitlum veðum eða gérði hann það einmitt þess vegna .... en hvers er að vænta af manni sem veit allt skilur allt & gétur allt nema tjáðsig án þess að vera með útúrsnúninga & skæting
Ja hérna hér. Hver hefði getað gert þetta betur? Ekki núverandi forsetisráðherra því hún kann ekki ensku og getur ekki talað við erlenda menn.
Ef þú er á móti Gjaldeyrissjóðnum og þessu háa vaxtarstigi sem þeir halda okkur í hér á landi og þessu fyrirfram tilbúna formi sem við erum greinilega að fara eftir þá ættir þú nú að vera í liði Davíðs því hann vildi ekki fá IMF hingað inn og hann er og var nú sá eini sem hefur sett viður við iMF. Það hefur engin/n annar gert en hann passaði ekki inn hjá kommonum. Geir leysti þetta risavaxna verk virkilega vel af höndum og að mínu mati hefði engin/n geta gert það betur. Geir og Davið viðruðu landsstjórn en Samfylkingin sá auðvitað svart þegar sú uppástunga kom úr munni Davíðs.
Vá, hvað þú ert óskaplega málefnalegur. Mætti segja að það jaðri við heimsku það sem þú lætur út úr þér á þessari síðu stundum. Það er eins og þú horfir í gegnum stálrör þegar þú skrifar um Davíð og Geir en áttar þig ekki á því að þú ert stuðningsmaður vart merkilegri manna. Þú lýsir ekki Ingibjörgu, Björgvini og útrásarvíkingunum og því fylgdarliði með jafn sterkum lýsingarorðum. Þú ert eins og hver annar flokkshundur, skítur fast á þá sem þú styður ekki en sérð ekki heimsku eða mistök (hvort sem þú kýst að kalla það) "þinna manna" ...
Hefði verið afskaplega gaman að sjá hvað þú hefðir gert í sömu sporum.....Nema þú kæmist aldrei þangað :) Bara lítill kall með stóran kjaft!



Samfylkingin fékk milljónatugi gefins frá baugi og Jóni Ásgeiri. Hvað gerði IGS í staðin ?