Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Samráð olíufélaga og ríkis gegn almenningi
Published: 7:06 AM GMT, 2-06-2009

Þar sem ég krúsaði sléttur Suðurlands í kvöld og brenndi rándýru bensíni, heyrði ég forstjóra N1, olíufélagsins hans Bjarna Ben, segja að það hefði verið ofur eðlilegt af olíufélögunum að skella skattahækkuninni á bensínið, beint á neytendur daginn eftir að Alþingi samþykkti þær.

Þarna var Hermann Guðmundsson forstjóri að andmæla Neytendastofu sem segir að hækkunin skuli leggjast á við tollafgreiðslu og því ekki koma til framkvæmda fyrr en nýr farmur kemur til landins.

Hermann sagði að vörugjald af bensíni væri greitt einu sinni í mánuði og það væri til að koma í veg fyrir að eitt félag sem ætti miklar birgðir, gæti selt ódýrara bensín en hin sem þyrftu að flytja inn nýjan farm.  Ég gat ekki betur skilið á honum en að ríkið væri með í ráðum.  Samráðum.

Þarna er á ferðinni samráð olíufélaga og ríkisins gegn neytendum því með þessu er tryggt að allt bensín við allar dælur í landinu hækkar á sama tíma um nokkurnveginn sömu upphæð og almenningur fær aldrei að "njóta" gamla verðsins.

Lögfræðingur Neytendastofu sagðií fréttum í fyrrakvöld að ef olíufélögin gætu ekki gefið viðhlítandi skýringar á því að hafa hækkað eldsneyti strax, mætti sekta þau.  Það er ekki nóg.  Hæfileg refsing yrði að gera þeim að selja eldsneyti á hundrað krónur lítrann út þetta ár og skítt með það þótt þau fari á hausinn.

Það myndi enginn gráta þau.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (8)

Björgvin Valur; Nú skilur einfeldningurinn ég þig ekki. Hvaða samráð milli ríkis og sveitarfélaga ertu að tala um? Er þetta ekki bara væll í þér út af engu, þessi hækkun í boði ríkisstjórnarinnar kemur, og hvort það gerist þegar þú fyllir tankinn í dag eða næstu viku skiptir bara engu máli. Just my 2 cents, og kemur því ekkert við hvort mér finnst gott að láta reka fúaspýtur upp í rassgatið á mér eða ekki.

left by borkur . 3-06-2009 8:34 AM

Börkur; það er samráðið MILLI ríkis og sveitarfélaga um að allir hækki eldsneyti um leið og Alþingi ákveður það en ekki þegar næsti farmur kemur til landsins, sem er aðfinnsluvert. Þetta er bara enn ein ópússuð fúaspýtan upp í skraufþurra boru almennings. Ef þér finnst það gott, skaltu bara bíða boginn áfram.

left by Björgvin Valur . 3-06-2009 8:20 AM

Brilliant tekjuöflunarleið fyrir ríkissjóð: "Hey, nú hækkum við skatta og gjöld, og svo sektum við fyrirtækin ef þau innheimta þetta fyrir okkur."

left by borkur . 3-06-2009 5:18 AM

Smá devil's advocate:

Ef þetta samráð væri ekki til staðar væri hvati til mikils birgðahalds þegar væntingar eru til staðar um verðhækkun og hvati til lítils/einskis birgðahalds þegar væntingar eru til verðlækkunar.

Slíkur breytileiki á birgðahaldi kostar olíufyrirtækin eflaust töluverða fjármuni sem fer beint út í verðlagið á olíu, til hækkunar. Spurningin er því hvort þetta samráð sé nokkuð skaðlegt neytendum.

Að því gefnu að verðlækkun sé jafn skjót og verðhækkun. Það er svo annað mál :)

left by BB . 2-06-2009 5:47 PM

Þú ert alltaf á neikvæðu nótunum Björgvin rétt eins og ykkur krötunum er svo tamt. Hvernig fer fjölskylda þín að því að umbera svona leiðinlegt viðhorf til þjóðfélagsins þú hlýtur að vera algjört vandamál heimafyrir ? Er nú ekki kominn tími til að þú farair að finna þér ærlega vinnu og hættir að lifa á okkur samborgurum þínum eins og þú hefur gert allt of lengi.

left by Egill . 2-06-2009 11:54 AM

já helv. Bjarni Ben að hækka....ha?

En það voruð þið sem að....úfff...

Þið sannið enn og aftur að það er enginn munur á D-riti og S-kít...

left by Ólinnn . 2-06-2009 11:45 AM

Það ætti auðvitað ekki að sekta olíufélögin. Svoleiðis fer bara beint út í verðlagið. Það sem á að gera er að sekta stjórnendur olíufélaganna, þá fyrst förum við að sjá breytingar.

left by Kári Kristinsson . 2-06-2009 9:01 AM

Samráð olíufélagana ennþá í fullum gangi. Þetta eru langt frá því að vera eðlileg vinnubrögð. Yfirvöld hljóta að skoða þetta nánar.

left by Bobbi . 2-06-2009 8:38 AM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER