Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Sameinuð Norðurlönd
Published: 1:10 PM GMT, 27-10-2009

Alveg er ég sammála Gunnari Wetterberg hinum sænska þegar hann leggur til að öll Norðurlöndin sameinist í eitt ríki; við höfum allt að vinna og engu að tapa í þessu sambandi.

Við myndum losna úr viðjum hinnar spilltu stjórnsýlsu okkar, við yrðum borgarar í ríki sem setur hagsmuni íbúanna framar hagsmunum stórfyrirtækja, mál sem við ráðum ekki við hérna ein og óstudd myndu leysast.  Þar á ég m.a. við velferðar- og heilbrigðismál, menntamál, landvarnir, eftirlit með hafinu í kringum landið og löggæslu.

Örugglega eitthvað fleira sem er okkur í raun ofviða, jafnvel þegar best lætur.

Þetta sameinaða skandinavíska ríki með ríflega 23.000.000 íbúa yrði síðan áhrifamikið innan Evrópusambandsins og víðar á alþjóðavettvangi.

Er eftir einhverju að bíða?

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (11)

Já já. Auðvitað verða Norðurlöndin seint eitt ríki en stundum óska ég þess að svo væri.

Gaman að heyra í sjálfstæðisþingmanninum frá Möltu í fréttunum áðan. Hann ætti að koma við í Valhöll og Hádegismóum.

left by Björgvin Valur . 27-10-2009 7:32 PM

Auðvitað lærum við ekki auðmýkt ein og fúl útí horni, því ættum við (ásamt öðrum ástæðum) að ganga í Evrópusambandið ekki seinna en strax.

En að sameinast Norðurlöndum?... það er bara að drepa umræðunni á dreif með kjánaskap.

left by Uni Gislason . 27-10-2009 7:28 PM

Hefur þá aldrei lesið þetta blogg áður, Bjarni? Síðastur manna er ég fullur af íslenskum þjóðrembugorgeir. Mér líkar þessar hugmyndir vegna þess að við þurfum að læra auðmýkt og ég held að við séum ekki fær um það ein.

left by Björgvin Valur . 27-10-2009 5:29 PM

Nei ég skal trúa því að þér hafi ekki dottið það í hug. Það áttu væntanlega sameiginlegt með þúsundum íslendinga, uppfullum af gorgeir og sjálfshóli, svona rétt eins og venjulega. En eins og þú og þeir hafa nú séð TÓKU HIN NORÐULÖNDIN þetta að sjálfsögðu ekki í mál !!

left by Bjarni . 27-10-2009 5:10 PM

Er það ekki Bjarni? Ekki hafði mér dottið þetta í hug.

left by Björgvin Valur . 27-10-2009 5:07 PM

"Er eftir einhverju að bíða" - Jesús - það vantar ekki mikilmennskubrjálæðið í fólk !! Held ekki karlinn minn að eitt einasta af Norðurlöndunum hafi MINNSTA áhuga á að sameinast Íslandi. Við erum ekki lengur MEST - STÓRUST - OG BEST !!! Og svona til upplýsinga fyrir ykkur sem haldið ekki vatni af von og hrifningu - ÞÁ VORUM VIÐ ÞAÐ ALDREI !!

left by Bjarni . 27-10-2009 5:01 PM

«Þau hefðu meira vald að því gefnu að þau stæðu saman.»

Vissulega, en það þarf ekki sameiningu Norðurlandanna til að skapa með þeim samstöðu. Samstæð og ósameinuð eru Norðurlöndin sterkari en sameinuð, innan sem utan ES.

Jæja, sem akademísk pæling á kaffihúsi er þetta skemmtileg pæling en hún hefur mun meira skemmtanagildi en raunhhæft gildi.

left by Uni Gislason . 27-10-2009 4:13 PM

Þetta var raunverulegur möguleiki um miðja 19. öld þegar hugmyndin um sameinaða Skandinavíu hafði mikið fylgi (og tók mið af sameiningu Þýskalands og Ítalíu sem var að eiga sér stað á sama tíma). Sá gluggi hefur lokast núna held ég.

left by Bjarki . 27-10-2009 3:34 PM

Ég er á móti þessari hugmynd. Hinsvegar styð ég hugmund Forsætisráðherra Finnlands um að öll norrænu ríkin gangi í ESB og taki upp evru. Við yrðum voðalega öflug á þeim vettvangi og innan ESB. Einnig sem það mundi styrkja alþjóðlega stöðu allra norrænu landana.

left by Jón Frímann . 27-10-2009 3:25 PM

Þau hefðu meira vald að því gefnu að þau stæðu saman.

left by Björgvin Valur . 27-10-2009 3:20 PM

Ef sleppt er öllu mögulegum og ómögulegum hindrunum varðandi hugmyndina af sameinaðri Skandó, þá er valdadreifing Evrópusambandsins þannig í dag að Skandenavísku ríkin (væru þau öll í EU) hafa meira vald en eitt 23 milljóna manna ríki.

Evrópusambandið er samband fullvalda ríkja, ekki einstaklinganna sem í þeim búa. Hugmyndin um sameinaða Skandenavíu er annars fullkomlega óraunhæf, en það er önnur saga. Kemur samt ekki á óvart að hugmyndin komi frá Svía - fólk sem heldur að Norðmenn kalli hjarta «blodpump» og pilt «jutt»... (sönn saga)

left by Uni Gislason . 27-10-2009 3:04 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER