Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Einföld réttvísin
Published: 11:06 PM GMT, 10-06-2009

Þetta er ósköp einfalt; það verður að fara að tilmælum Evu Joly í einu og öllu.  Annars sýður upp úr og þá verða hér átök sem munu hafa alvarlegri afleiðingar en hægt er að ímynda sér innan úr fílabeinsturnunum.

Það gengur ekki að gera okkur ábyrg fyrir skuldum glæpalýðsins en kasta svo til hendinni við rannsókn á gjörðum þessa sama lýðs.

Nú þegar skynjar maður að tök ríkisvaldsins á stjórn landsins eru veik og það þarf ekki mikið að bregða út af til að hér verði algjört stjórnleysi.

Ef við sem köllumst almenningur finnum, eða bara höldum, að verið sé að tefja framgang réttvísinnar, að hyskið sem kom okkur á hausinn sé að sleppa, tökum við hana í okkar eigin hendur.

Svo einfalt er það.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (7)

Ragna reddar þessu

left by frú Birna . 11-06-2009 9:44 AM

Innilega sammála, þetta verður ekki liðið lengur.

left by Arnar . 11-06-2009 1:47 AM

Það er ekki hægt að vera meira sammála nokkrum manni en ég þér núna. Heyr, heyr!

left by Lára Hanna . 11-06-2009 1:27 AM

já og þá verður Austurvöllur allt of lítill einhvern veginn !

left by Heiður . 11-06-2009 1:18 AM

jess

left by Begga systir . 11-06-2009 12:24 AM

Amen.

left by Solveig . 11-06-2009 12:17 AM

Hverju orði sammála. Hér sitja menn á púðurtunnu og leika sér að eldinum, getur heimskan verið meiri?

left by Toni . 10-06-2009 11:58 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER