Árni pirrar auðvaldið
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra fær rós í hnappagatið fyrir ræðu sína á ársfundi ASÍ í gær. Ekki spillir fyrir að hann kallaði fram kveinstafi hjá grátkórunum sem hann fjallaði um í ræðunni en það segir mér að kórfélaga hefur sviðið undan orðum hans. Meira að segja fulltrúar hinna óforskömmuðu kapítalista á Alþingi, gráta nú hástöfum undan hvassri brýningu Árna.
Gott.
Líklega eru það eftirfarandi kaflar sem fóru fyrir brjóstið á grátkórunum:
„Við viljum semja við erlend fyrirtæki en ekki upp á hvaða býti sem er. Við erum til dæmis ekki tilbúin að semja um óendanlega skattaafslætti. Atvinnulíf sem ekki getur lagt af mörkum til samfélagsins er ekki upp á marga fiska. Við getum tekið dæmi af sjávarútveginum sem hefur notið ríkulega ávaxtanna af stórfelldri gengisfellingu, en kveinar samt viðstöðulítið undan hugmyndum um hóflega innköllun aflaheimilda. Afkomubati sjávarútvegsins á síðasta ári hleypur á tugum milljarða. Þessi afkomubati er fenginn með fórnum ykkar og ykkar félagsmanna. Gengisfellingin færði peninga frá íslensku launafólki til sægreifa og stóriðju. Grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja er háværari og ágengari á sama tíma og launafólk hefur stillt kröfum í hóf og sýnt mikið þolgæði. Það er íhugunarefni.“
Og:
„Við eigum að greiða fyrir atvinnuuppbyggingu en við eigum ekki að sæta afarkostum óforskammaðra kapítalista. Þeir vinna að einu markmiði – hámörkun arðs. Það vitum við vel af reynslu undanfarinna ára. Við eigum að standa með okkur sjálfum, setja viðskiptalífinu skýr mörk og verða ekki ginningarfífl stóriðju og útgerðarauðvalds með sama hætti og við eltum sérhagsmuni bankadrengjanna og útrásargosanna á undanförnum árum. Reynsla nágrannaríkja okkar sýnir skýrt að samkeppnishæfni þjóða og hátt skattastig eru engar andstæður – þvert á móti er traust velferðarkerfi og afkomuöryggi almennings forsenda efnahagslegrar framþróunar til lengri tíma litið. Þeir sem halda öðru fram hafa ekkert lært af mistökum undanfarinna ára.“
Svei mér þá ef þarna er ekki kominn framtíðarforingi alþýðufólks á vettvangi stjórnmálanna.
Athugasemdir (8)
Voru þetta ekki tillögur sem nefndin setti sjálf inn í frumvarpið eftir að það kom frá Árna Páli en hætti svo við þær eftir ábendingar um að þær gætu gagnast kúlulánaþegum?
Það held ég.Fyrirgefðu. Sjá hér:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/10/24/haett_vid_breytingu_a_skattaloggjof_i_skyndi/Hvað er þetta Morgunblað sem þú talar um?
Þú gerir ekki miklar kröfur til alþýðuforingja. Heldurðu að það hafi verið tilviljun eða fyrir mistök að inni í frumvarpi Árna Páls um greiðsluaðlögun hafi verið „heimilað(ar) skattfrjálsar afskriftir risastórra kúlulána, sem tekin voru vegna hlutabréfakaupa og koma tilgangi laganna ekkert við“ (sjá Mbl 24/10/2009)? Árni Páll er falsið holdi klætt.
Við skulum nú ekki gefa mönnum titla sem þeir eiga ekki skilið...Björgvin er ekki kennari, hann er leiðbeinandi.
Það er naumast hvað sumir eru duglegir við að reyna að spinna þessari gagnrýni Árna á forkólfa iðnaðar og sjávarútvegs yfir í það að hann hafi verið að lítillækka fólkið sem starfar í þessum greinum, sbr. samlíkingu JGH, þar sem hann nefnir kennarastéttina til sögunnar.
Ekki eitt orð um verkamanninn eða sjómanninn er að finna í ræðu Árna Páls, nema þá helst þegar hann imprar á hófsömum kröfum launafólks. Ef ræða Árna Páls er lýðskrum, hvað skal þá segja um þann málflutning að hann hafi verið að ráðast gegn verkamönnum og sjómönnum í ræðu sinni?Á íslensku eru svona menn kallaðir lýðskrumarar....væri gaman að vita hvort eigandi bloggsíðunnar, kennarinn knái á Stöðvarfirði, væri jafn hrifinn ef félagsmálaráðherra eða annar ráðherra létu álíka orð falla um kennarastéttina.



Ég heyrði skýringar Árna Páls í fréttunum. Við skulum láta hann njóta vafans. Nóg er nú samt.