Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Rógur
Published: 10:06 PM GMT, 12-06-2009

Rógsherferðin sem nú hefur verið sett í af stað til þess að gera lítið úr Evu Joly, er til vitnis um skítlegt eðli Sjálfstæðisflokksins hvaðan rógurinn og ófrægingin koma.

Agentar Flokksins reyna að telja okkur trú um að Eva Joly skilji ekki íslenskt réttarfar af því hún er frönsk; þeir eru enn á þeim buxunum, stuttbuxunum, að Ísland sé á einhvern hátt sérstakt og óskiljanlegt öðrum en þeim sem hafa hér alist upp.

Embættismenn sem íhaldið skipaði á löngum valdaferði sínum, leggjast nú þverir í götu Evu Joly og gera sitt besta til að tefja framgang réttvísinnar en ósköp kurteislega þó - þeir eru komnir í gamla íslenska lagabókstafsleikinn.

Verði þeim að góðu því þjóðina þyrstir í réttlæti og hún mun sækja það með handafli ef hún ekki fær það friðsamlega.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (21)

Skynsemi "Sillu" virðast lítil takmörk sett, eftirfarandi er dásamlegt. "sigurði gengur það efalaust eitt til að koma í veg fyrir réttarfarslegt slys á Íslandi en ljóst er að blaðrarinn Eva Joly þekkir ekki íslenskt réttarfar"

Það þarf nú ekki að vera sérfræðingur í íslensku réttarfari til að sjá að á Íslandi hafa verið framin efnahagsleg óhæfuverk. Til að rannsaka efnahagsleg óhæfuverk þarf ekki heldur að vera sérfræðingur í íslensku réttarfari. Til að vera ráðgjafi við rannsókn á efnahagslegum óhæfuverkum þarf ekki að vera sérfræðingur í íslensku réttarfari.

Silla, það væri eflaust þjóðráð fyrir þig að leggja höfuðið í bleyti um stund áður en þú tjáir þig mikið á veraldarvefnum. En hey það er pínu erfitt að trakka þig þar sem þú ert bara "Silla" þannig þú getur óhrædd/ur ausið úr hinum eflaust ótæmandi brunni visku þinnar.

left by Páll Kárason . 14-06-2009 7:32 AM

Guðmundur Gunnarsson bendir hér að ofan á þa´skemmtilegu staðreynd að Sigurður Guðjónsson hinn þekkti lögfræðingur er svili Björgvins Sigurðssonar og kosningastjóri hans. M.ö.o þá vinnur Sigurður fyrir Samfylkinguna. En nú bregður svo við sem oftar að Sigurður skrifar góða grein og í þetta skipti bendir hann á alla vitleysuna sem vellur upp úr þessari ofstækiskonu Evu Joly sem norðmenn gátu ekki notað sakir blaðursins í henni. sigurði gengur það efalaust eitt til að koma í veg fyrir réttarfarslegt slys á Íslandi en ljóst er að blaðrarinn Eva Joly þekkir ekki íslenskt réttarfar. Menn eins og Björgvin Valur bæjarslúðrari ættu að lesa grein Sigurðar flokksbróður síns áður en þeir bulla meira um róg og rógburð.

left by Silla . 13-06-2009 3:10 PM

Það er rétt sem Friðjón segir hér að Valtýr, að lokum, gaf það út að hann væri vanhæfur. Valtýr var nú ekki á því fyrst, hann væri nú alveg hæfur að rannsaka mál sem tengdust bankahruninu. Það væri nú bara bull og vitleysa að hann sjálfur væri eitthvað tengdur málum í bönkum landsins. Það þurfti talsvert til að hann lýsti yfir þessu blessaða vanhæfi. Núna standa mál þannig að erlendur ráðgjafi sem engra hagsmuna hefur að gæta hér á landi telur að Valtýr ætti að víkja úr sínu embætti. Bara tengsl Valtýs við gerendur í málinu hefta embættið. Mín skoðun er sú að Valtýr ætti að vera það stórmenni að segja af sér þótt ekki sé nema til enginn minnsti vafi leiki á að embættið geti tekið þátt af fullum þunga í þessari rannsókn. Við erum að tala um, jafnvel, eitt stæðsta efnahagsbrotamál í Evrópu á síðari árum og ríkissaksóknara Íslands. Er þetta einhver spurning?

left by Ásta B . 13-06-2009 11:10 AM

Við erum vestrænt lýðræðisríki - gleymum aldrei að hornsteinn að samfélagi okkar eru lög og kristin trú. Í öllu þessu ferli verður að fara eftir lögum og við getum ekki dottið sjálf í þann pitt að fara ekki eftir lögum og vaða fram eins og naut í flagi. Þá erum við ekkert orðin skárri en þeir sem við erum að reyna að koma í steininn fyrir þá ógæfu sem þeir hafa kallað yfir okkur.

left by JGH . 13-06-2009 10:47 AM

Gaman að þessu:

"http://www.dv.is/blogg/johann-hauksson/2009/6/12/mengun-hugarfarsins/

left by Rómverji . 13-06-2009 2:09 AM

Hvernig er það annars. Eyðileggur OFUR - Samfylkingarmaðurinn og kosningastjóri Björgvins G. Sigurðssonar fyrrum ráðherra og Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, sjálfur Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður nokkuð Sjálfstæðisflokkskenningu blogghöfundarins? (O:

left by Guðmundur Gunnarsson . 13-06-2009 1:55 AM

Ef ástandið væri ekki svona grafalvarlegt hérna á Klakanum þá væri bara gaman að fylgjast með embættisblókunum og möppudýrunum engjast svona um þessa dagana vegna Evu Joly. Svakalega sem þeir eru að gera stórt í brækurnar núna af hræðslu...

left by Systa . 13-06-2009 1:23 AM

Hó hó hó. Hafa allir sem kommenta á þessa síðu alveg misst af því að Valtýr sjálfur hefur fyrir löngu sagt sig frá málinu vegna VANHÆFIS? (sem NB. hefur ekkert með vanhæfni að gera)

Hvergi hefur Valtýr Sigurðsson haldið því fram að hann eigi að koma að rannsókn málsins.

Það eru fleiri mál en sem tengjast bankahruninu sem þarf að sækja til saka og það er ágætt að Valtýr einbeiti sér að þeim.

Hér bullar einhver EG, veit ekkert um málið en gjammar einsog púðluhundur með orma.

Valtýr hefur sagt sig frá málinu, það er skýrt. Eva Joly er norsk kona fædd þar og uppalin en hún hefur búið meira eða minna í Frakklandi undanfarin 48 ár. Hún er núna pólitíkus í Frakklandi, situr á Evrópuþinginu og er í flokki sem er vinstri grænn en kannski aðeins klikkaðari.

Já og EG, DC er Washington DC.

left by Friðjón . 13-06-2009 1:11 AM

Þeir sem riðu á vaðið með að reyna að gera lítið úr konunni var fréttastofa Stöðvar 2 sem flutti afar lágkúrulega frétt um hana og kostnaðinn við hennar aðkomu að rannsókn hrunsins, um leið og þeir skýrðu frá óánægju hennar.

Hún tók fram í viðtalinu í Kastljósi amk. annar stjórnarflokkurinn væri ekki samstíga eða augljóslega ekki jafn ánægður með hennar innkomu og störf, og varla á hún þar við Sjálfstæðisflokkinn.

Miðað við þessar upplýsingar sýnist manni að Jón Ásgeir og hans mafía vera líklegusta að standa á baki við ófræingarherferð og þá með Samfylkinguna sem pólitíska aflið sem þeir þurfa. Ólafur Arnarson td. hlýtur að teljast hans og þeirra málpípa miðað við grímuleysi áróðursins sem hann heldur fram í skrifum sínum um þátt og ábyrgð allra á hruninu. Alla aðra en útrásarmafíunnar og Jóns Ásgeirs eiganda Stöðvar 2 og Baugsmiðla. Hann þekkir allra best hvernig á að nýta sér fjölmiðla til að vinna sigur þótt sekur væri fyrir dómstólum með að ráðast á og ófræa sem að rannsóknunum starfa.

left by Guðmundur Gunnarsson . 13-06-2009 12:38 AM

Mér finnst í rauninni fínt að fá það staðfest hvað fólk er fullt af hubris, og hvað fólk er til í að leggjast lágt.

left by Kristleifur Daðason . 13-06-2009 12:26 AM

Björgvin það er hlægilegt að sjá þig skrifa um róg og rógsherferðir því enginn er meiri rógsberi og slúðurberi en þú Björgvin letingi. Hættu nú þessum endalausa rógburði og skítkasti út í aðra Björgvin flokkurinn þinn hin gegnumspillta Samfyllking ( Baugsflokkurinn ) er farin að líða fyrir skítkastið sem Þú dritar yfior alla aðra. Fók villi ekki svona bloggara eins og þig Bj0rgvin Valur fáðu þér nú vinnu svo við getum hætt að halda þér uppi.

left by Silla . 13-06-2009 12:07 AM

Friðjón hegðar sér núna einmitt nákvæmlega eins og Eva Joly hafi skrifað handriðið fyrir hann í bók sinni. Gjammari, sem er samt ekki alveg varðhundur, sem fer af stað til að rægja og hæðast að rannsakendunum.

left by Pétur . 12-06-2009 11:51 PM

Allt eftir handritinu. Eftir að hafa lesið bók Evu Joly beið ég eftir þessum fyrirsjáanlegu viðbrögðum. Gera lítið úr, hæðast að o.sv.frv. Þetta er bara byrjunin.

left by Solveig . 12-06-2009 11:43 PM

Friðjón þessi frakki sem þú hittir í DC ( hvar sem DC er) heitir hann nokkuð Roland Dumas? Vanhæfni Valtýs hefur ekkert með hans pólítísku skoðanir að gera - það eru til ákveðnar reglur um vanhæfni til að tryggja réttaröryggi en Valtýr er vafalaust mjög hæfur embættismaður. Hinir bestu menn geta orðið vanhæfir við ákveðnar aðstæður einsog í tilfelli Valtýs. Og hann er kannski ekki besti maðurinn til að meta það.

left by EG . 12-06-2009 11:41 PM

Svona málflutningur er fyrsta skrefið að "öfgaflokki", málflutningur margra þessa dagana hræðir mig, t.d. hjá formanni Framsóknarflokksins, sem reyndar viðurkennt að hans markmið að koma stjórninni frá. Og maður hélt að allir að vinna að hag þjóðarinnar að leiðarljósi á þessum síðustu og verstu tímum!!!! Af hverju er mikilvægast að koma stjórninni frá? Er það út frá hagsmunum þjóðarinnar? Erfitt að sjá að nýjar kosningar / stjórnarkreppa samræmist hag þjóðarinnar? Eða út frá hag þeirra hagsmunaaðila sem standa bakvið flokkinn? Kannski svartsýn að upplagi en hallast að því síðast nefnda :-o

Ég er hætt að hvetja Valtýr Sigurðsson til að segja af sér, ég ætlast til þess að hann segi af sér. Ef ekki þá ætlast ég til að honum verði sagt upp, eða settur í "garðyrkjufrí" (gardening leave eins og Bretinn kallar það).

left by ASE . 12-06-2009 11:32 PM

Við hunsum Ólaf og hans skrítnu athugasemdir- að Eva hafi ekki fengið réttar upplýsingar. Hvaða bull er þetta. Er einhver sem efast um vanhæfi Valtýs? Nema Clausen og Valtýr, þeir eru efins..... engin er dómari í sjálfs sín sök.

left by EG . 12-06-2009 11:29 PM

Þegar Jónas Friðrik (er það annars með litlum staf?) segir eitthvað er það þá ekki til stuðnings út rásarvikingunum?

left by Tryggvi . 12-06-2009 11:27 PM

Eva er norsk. Hitti Frakka hér í DC sem vottaði okkur samúð sína fyrir að sitja uppi með hana.

Valtýr er og hefur verið fyrirmyndarembættismaður, hef aldrei séð hann á neinum samkundum Sjálfstæðismanna og veit í raun ekkert um hans pólitísku skoðanir.

Þessi krafa Evu Joly er galin.

left by Friðjón . 12-06-2009 11:26 PM

Að ónýta mál er þjóðaríþrótt á Íslandi. Stunduð frá því um 930. Tókst ágætlega í olíuþjófamálinu og Baugsmálinu.

Látum það ekki gerast enn!

left by Rómverji . 12-06-2009 11:25 PM

Maður þarf ekki að vera franskur til að skilja ekki íslenskt réttafar.

left by Arnar . 12-06-2009 11:24 PM

Já bölvaður bömmer að hafa þessi lög í landinu.

left by Hermann . 12-06-2009 11:02 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER