Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Refsingin hæfi glæpnum
Published: 2:10 PM GMT, 31-10-2009

Þegar og ef einhverjir verða fundnir sekir um glæpi sem beinlínis ollu hruninu eða urðu til þess að leggja drápsklyfjar á þjóðina, finnst mér ekki endilega eiga að dæma þá til langrar fangelsisvistar.  Það er of dýrt fyrir samfélagið og ástæðulaust að við förum að halda liðinu uppi með fæði og húsnæði mjög leng; nóg er að borga skuldir þess.

Mér finnst það eigi að laga refsinguna að glæpnum, svona eins og gert er í tilfelli þeirra sem eru staðnir að því að aka undir áhrifum áfengis.

Það mætti til dæmis hugsa sér að dæmdu fjárglæfrafólki verði bannað að koma nálægt viðskiptum af nokkru tagi.  Ævilangt.

Þeim verði bannað að sýlsa með fjármuni eða nokkur þau verðmæti sem hægt er að auðgast á eða brúka til svindls, allt frá því að reka banka upp í það að vera gjaldkerar í ungmennafélagi.  Þeim verði rétt svo heimilað að versla í matinn.

Öllu erfiðara er að finna refsingu við hæfi fyrir þá stjórnmálamenn sem kunna að verða fundnir sekir um glæpi sem ollu hruninu eða spillingu af einhverju tagi, en það mætti hugsa sér að banna þeim að gegna nokkurntíman opinberu embætti aftur og taka af þeim þau réttindi að mega bjóða sig fram til Alþingis eða sveitarstjórna svo maður tali nú ekki embætti forseta lýðveldisins.

Þeim verði sumsé bannað að fara með vald.

Nú hef ég ekki hugmyns um hvort íslensk lög gera ráð fyrir svona refsingum en ef svo er ekki, verður þá ekki að vinda sér í að breyta þeim og gera þau afturvirk?

Bara spyr.

Dreifið á Facebook

Segðu (4) . Category: Hrunið

Athugasemdir (4)

Ég gengst við því að vera illur inn að beini.

left by Björgvin Valur . 31-10-2009 6:25 PM

Tja, ef þú vilt setja afturvirk refsilög þá verður þú fyrst að afnema 69. gr. stjórnarskrárinnar.

En Orwellískari hugmynd hef ég sjaldan séð viðraða áður. Ég ætla að gera ráð fyrir að þetta hafi verið grín... hinn valkosturinn er að þú sért hreinlega illur inn að beini.

left by Víkingur . 31-10-2009 5:38 PM

reka þá fyrir björg géra skilanefndirnar landlausar (útlægar) a.m.k 1 ár á milljarð í afskriftum

left by Tryggvi . 31-10-2009 4:07 PM

Hvað með landráð? Lágmark að svipta landráðamenn ríkisborgararétti. Þá þarf reyndar að breyta stjórnarskránni.

left by Þórarinn . 31-10-2009 3:18 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER