Að haga seglum eftir vindi
Ég hef alltaf öfundað fólk sem hefur getað komið sér upp góðum prinsippum. Mig hefur oft langað í svoleiðis en einhverra hluta vegna aldrei tekist það alminilega; það vill alltaf eitthvað rekast á við þau og ég á erfitt með að feta hina beinu og þröngu braut.
Án þess að ég vilji á nokkurn hátt líkja mér við höfuðsnillinginn Þórberg Þórðarson, þá átti hann þetta sammerkt með mér alla vega framan af ævinni - að geta illa haldið þær lífsreglur sem hann setti sér. En hann þroskaðist með aldrinum og varð held ég bara nokkuð stefnufastur.
Reynsla mín er sumsé sú, að prinsipp eru fín þangað til þau fara að rekast á við raunveruleikann og heilbrigða skynsemi.
Öfgafullt dæmi um slíkt er þegar ofsatrúarfólk fer ekki með börnin sín til læknis þegar þau veikjast, heldur biður án árangurs til guðs eftir bata sem ekki kemur og barnið deyr, en fólkið er samt himinlifandi með þennan guð sinn.
Í pólitík erum við sem högum seglum eftir vindi, fyrirlitin af prinsippfólki beggja vegna við okkur en komast ekki seglskip milli landa og í örugga höfn einmitt vegna þess að skipstjórar þeirra kunna að haga seglum eftir vindi? Er ekki þaðan orðtakið komið?
Aðstæðurnar sem mæta okkur eru fjölbreytilegar og viðfangsefnin þarf að nálgast úr mismunandi áttum til að leysa þau.
Ekki bara frá vinstri eða hægri af því við ákváðum einhverntíman í eitt skipti fyrir öll að ein aðferð sé best og dugi á allt.
Sama hversu krúttlegt það kann nú annars að vera.
Athugasemdir (7)
Uni er enn að reyna að halda því að fólki að þjóðremban í Framsóknarflórnum sé þjóðrækni. En svo því sé til haga haldið þá er hún það ekki.
"Að ganga með steinbarn í maganum" er líka nokkuð skýr líking...
Þakka þér fyrir að minna mig á Framsóknarflokkinn Uni, ég var búinn að gleyma honum. En með hitt - þú þekkir ekki muninn á reynslu og prinsippum.
Þú ert ekki nógu krúttlegur í dag.
Ó ég mundi nú ekki dæma mig svo hart ef ég væri þú... það er örugglega fullt af prinsiphlutum sem þú rígheldur við sama hvað raunveruleikinn segir. Kannski til dæmis að kristin trú sé ógleðisvaldur, Framsóknarflokkurinn er Satan sjálfur, þjóðrækni er þjóðremba og þjóðremba er bara nazi-lite, það sé hægt að ræða við xD á málefnalegum grundvelli... og (sem betur fer) að sama hvað, þá er Íslandi best borgið sem fullgildur meðlimur Evrópusambandsins.
Jú jú, við höfum fullt leyfi til að skipta um skoðun, skárra væri það nú.



Pétur:
Ég er ekki að halda neinu fram, bara hughreysta Björgvin Val. Þjóðremba finnst í öllum flokkum, en það er ekki pointið. Björgvin Valur: Mín reynsla Þín prinsip Hans veruleikafirring (Framsóknarflokksins aðallega) Fer einfaldlega eftir því um hvern rætt er.