Mis eitthvað
Mér þykir Íslandsbanki túlka hugtakið mistök ansi vítt, þegar hann ber því við að margra milljóna króna lán til ófjárráða einstaklninga, barna, hafi verið það. Mistök.
Það væri kannski hægt að telja okkur trú um að eitt svoleiðis tilfelli gæti ef til vill hugsanlega hafa orðið að veruleika fyrir mistök. En bara kannski, því í allri kennitöluflórunni og auðkennafarganinu, hefði maður haldið að það væri nokkurnveginn útilokað fyrir barn að komast fyrir mistök í gegnum lánasíu eins banka.
Nema nottlega foreldrarnir í græðgi sinni og bíræfni, hafi skipt um kennitölu á börnunum sínum rétt á meðan þau sóttu um lán hjá Glitni til að kaupa Byr.
En þegar tíu börnum eru lánaðir peningar hjá banka er ekki hægt að tala um mistök.
Misnotkun er nær lagi.
Athugasemdir (3)
Hvusslags rugl er þetta? Foreldrarnir eiga auðvitað að borga lánin sem þeir tóku út á börnin sín.
Geðveiki?



Að sjálfsögðu borga foreldrarnir. En ekki hvað?