Misheppnað lýðskrum
Hvað skyldi Þór Saari gera við brakið sem hann hirti úr húsinu sem gaurinn á gröfunni reif í tætlur á þjóðhátíðardaginn, nú þegar hjón í Kollafirði segja húsabanann haft af sér tíu milljónir með svikum og prettum og fimm milljónir af félaga þeirra með sömu aðferð?
Þið munið kannski að þingmaðurinn, Þór Saari, lét mynda sig við að tína saman spýtnabrak og sagðist ætla að færa það Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.
Líklega er þetta misheppnaðasta lýðskrum síðari ára og tel ég þó þjóðernisbelging Frjálslynda flokksins með.
En kannski færir Þór Saari fólkinu í Kollafirði spýturnar því þau eru að byggja sér hús.
Athugasemdir (15)
Snæbjörn ruglar mínu kommenti saman við kommenti Arnars en ég fæ ekki séð að framkoma mannsins gagnvart viðskiptavinum sínum hafi áhrif á það að þetta er ógnun sem allir geta hótað bönkunum sínum þegar kemur að því að reka tugi þúsuda manneskja frá heimilum sínum um áramótin. Það er í breytingunni á valdajafnvæginu sem mikilvægið liggur og ekki í siðferði mannsins.
Æi, fyrirgefið. Heilagir þingmenn borgarahreyfingarinnar eru hafnir yfir gagnrýni. En hann er samt lýðskrumari.
Mér finnst þessi færsla lykta af lýðskrumi.
Smáborgaralegt besservisserablogg úr pólitískum skotgröfum. Að líkja þessu svo við hatursáróður FF er langt langt undir velsæmismörkum.Don´t blame the player. Blame the game.
Héðinn Björnsson spyr hvort geti "verið að Þór hafi ekki vitað betur, frekar en þú og ég?"
Það tel ég rétt ályktað hjá honum, en einmitt þess vegna átti hann að kynna sér málið frá öllum hliðum áður en hann tók opinbera afstöðu í viðkvæmu máli (hvort sem það væri með eða á móti þessum aðgerðum). Maðurinn er jú, ólíkt mér og þér, þingmaður og sem slíkur verður að sýna gott fordæmi, ekki síst á svona erfiðum tímum og nú ríkja. Einn liður í því er ekki að "hoppa" á hvað sem er, heldur að sýna ábyrgð, kynna sér málin frá öllum hliðum og taka afstöðu út frá því. Myndi Þór í dag fara og týna sömu spýtur? Leyfi mér að efast um það. Og ef rétt, þá bendir það til þess að hann of bráðlátur, að hann kynni sér málin ekki nógu vel frá öllum hliðum áður en hann tekur afstöðu? Þór er enginn "asni" og ég trúi því að hann beri hag hins almenna borgara fyrir brjósti og vilji vel. Hann hins vegar gekk of langt í þessu tilfelli (og reyndar finnst sumar ræður hans ekki sæmandi manni í hans stöðu heldur en held samt að meini vel og fyrir vikið tilbúin að sjá aðððeinsss fram hjá því í bili en....). Mér þætti Þór hins vegar maður meiri maður ef viðurkenndi að hafa hlaupið á sig. En ef menn vilja vera í lýðskrumi á annað borð þá er Björgvin með rétta svarið og að færa...."fólkinu í Kollafirði spýturnar því þau eru að byggja sér hús" Verð að viðurkenna að meiri samúð með þeim eftir að staðreyndir málsins urðu ljósar!Það er ekki vegna þess að reynir ekki.
Þór Saari kann ekki lýðskrum, ekki enn að minnsta kosti. Ef til vill mun hann læra eitthvað af þingmönnum Samfylkingar, en eg vona ekki og hann hefur sýnt aðdáunarverðan mótþróa hingað til. Sannarlega vonar maður að hann læri heldur ekki að taka við fjárfúlgum að gjöf frá fjárglæframönnum.
Innræti og einklegar aðstæður þess sem reif húsið sitt eru ekki aðalatriði. Atvikið er lýsandi fyrir ástand. Það er lífsspursmál að heillum horfin og firrt ríkisstjórn ranki við sér. Þór Saari gerði að minnsta kosti tilraun til þess að vekja hana. Það verður því miður ekki sagt um marga þingmenn. Þetta munu flokkshollustuhænsn ekki vilja skilja.Lýðskrumið er víða. Nýlega er yfirstaðið fálkaorðulýðskrum. Þar fékk bæjar"stýran" okkar í Fjarðabyggð orðu á brjóstið fyrir "framlag til opinberrar stjórnsýslu"!! Einmitt! Veit einhver hvað það er? Þess sjást víða merki í Fjarðabyggð, eða hvað? Mætir hún með krossinn á brjóstinu á næsta borgarafund á Fáskrúðsfirði, þar sem gerð verður enn ein mimslukkuð tilraun til að ganga geng vilja fólksins. ..."framlag til opinberrar stjórnsýslu" ... mæa ass!
Þessi maður er þjófur, það virðist ljóst.
En það breytir engu um hans statement, ég er ánægður með það. Þór Saari gerði sig ekkert að fífli, bankinn fór ílla með þennan mann, og það breytist ekkert við það að hann hafi sjálfur farið ílla með aðra. Þetta var aðgerð gegn bankanum, hver segir að hann hafi verið að setja sig á stall, eða leika píslarvott? Var hann ekki bara að hefna sín á ósanngjörnum banka?? Ég er ánægður með það að það sé allavega einn maður í landinu sem býður bankanum birginn, jafnvel þótt það hafi verið maður með misjafna fortíðsammála þér í einu og öllu. Maðurinn sem gerði þetta og tók upp ætlaði að setja sjálfan sig á stall sem fórnarlamb og reyna að öðlast einhverskonr píslarvottar stimpil fyrir það. Hann hefur verið að reyna að afsaka skuldina við fólkið en guð minn almáttugur hvað þau rök halda illa. Málið er að ef þú ert umboðsmaður vegna kaupa á 3 aðila hefur þú ekkert með að halda eftir greiðslum frá kaupendum og ef hann hefur verið kominn á endastöð á hann ekki að þiggja þessar greiðslur. Það er eitthvað mikið bogið við allan þennan gjörning þessa manns og sögu hans, sem vert er fyrir blaðamenn að skoða
Líkt og margir fleiri fann ég í fyrstu til samúðar og samkenndar með manninum. Þær tilfinningar eru nú roknar út í veður og vind.
Arnar. Að þingmaður skuli ætla að nýta sér þetta til vinsælda, er lýðskrum af verstur sort. Að gaurinn sem reif húsið hafi verið svikull bisnisskarl, gerir Þór að fífli.
Hættan við að hér verði algjört siðrof, þar sem fólk sem hefur engu að tapa vegna skulda grípur til taktíkur hinnar brendu jarðar að rússneskum stíl, verður varla minni af því að maðurinn hafi skuldað öðrum en bankastofnun. Verði ekki búið að gefa fólki möguleikann á að skila inn lyklunum sínum að bandarískum sið þegar nauðarsölubannið rennur út í 31. október fer hér allt í hart og þá verða þessi viðbrögð talin með þeim vægarri.
Getur verið að Þór hafi ekki vitað betur, frekar en þú og ég?



Þór Saari er jú alveg greinilega uti að aka og er beinlínis hlægilegur í brambolti sínu.
Viðkomandi húsbrjótur sagðist engu hafa að tapa. Það er athyglisvert þegar aumar veraldlegar eigur eru allt sem menn geta tapað - en sjálfsvitund margra tengist húsnæði eða bílum fullmikið, þ.a. ef viðkomandi húsnæði tapast (að ég tali nú ekki um bíldrusluna) virðist sjálfstraustið hverfa - það er harla aumleg afstaða og ber ekki vott um nokkurn dug. Viðkomandi skemmdarvargur hefur sennilega tapað ærunni áður en hann eyðilagði húsið en þá var hvort sem er lítið eftir. Það þarf að fjarlægja manninn af götunum áður en hann eyðileggur meira eða féflettir grandalausa með hroka sínum.