Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Loftur böðlast áfram
Published: 7:10 PM GMT, 25-10-2009

Líflátstillögur af hálfu Lofts Altice Þorsteinssonar eru ekkert nýnæmi en þær verða sífellt skrautlegri og greinilegt að karlinn ræður ekki við þetta.  Ekki myndi ég þora með honum niður í kjallara.

Eða upp á loft.

Í apríl vakti ég athygli á þessum ummælum hans:  "Er það raunverulega svo, að þessu landráðahjali um innlimun landsins í Evrópusambandið (ESB) eigi ekki að linna? Eru predikarar Andskotans (ESB) ekki að verða saddir lífdaga? Þarf þjóðin að losa þessa menn við hausinn á sér, svo að þeir þagni?"

Þau eru fengin úr þessari bloggfærslu en hún er skrifuð um líkt leyti og Loftur var að bjóða sig fram til formanns í Sjálfstæðisflokknum.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (11)

Hvað kemur framsókn málinu við!!!??? :-)

left by Jón H. Eiríksson . 28-10-2009 12:05 PM

Í rauninni skiptir það engu máli hvort þú sjáir einhvern mun á xB og xD - því Sjálfstæðismenn sjá muninn og þeir brosa breitt meðan kratarnir og kommarnir glefsa í framsókn. Þeir senda þér væntanlega jólakort, til að þakka fyrir sig...

Enda hefur fylgi xD aukist úr 25% frá kosningum upp í 35% síðustu daga. Meðan vinstri flokkarnir rífast og skammast út í hvorn annann og framsókn, fitnar íhaldið.

Rétt eins og Altice er bilaður af heift gagnvart einhverju gælumálefni og skemmir augljóslega mun meira fyrir sér og sínum málstað með bullnu í sér, þá gildir nákvæmlega það sama um suma vinstrimenn og afstöðu þeirra gagnvart framsókn.

left by Uni Gislason . 26-10-2009 6:20 PM

Ég myndi taka undir þetta ef ég sæi einhver mun á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Fyrir utan augnsvipinn.

left by Björgvin Valur . 26-10-2009 5:10 PM

Pfff nú ertu ekki einu sinni að reyna.. Mennirnir sem stofnuðu Framsóknarflokkinn (s.s. Sigurður Jónsson og Guðmundur Ólafsson) voru sprell-lifandi fyrir 1914 og gátu því hæglega hafa laumast til Sarajevo og stútað Franz Ferdinand, erkihertoga - laumast svo aftur til Íslands og stofnað Framsóknarflokkinn (smá prívat-húmor Sigurðar og félaga... sem nefndu hann sín á milli Franz-óknarflokkinn, sem sannar raunar að þeir stóðu alltaf á bakvið WWI)

En svona í alvöru, að leggja fæð á Framsókn er ekkert annað en að taka viljugur þátt í «divide and conquer» xD. Sá í akur óvinarins - frivillig. Það rann ansi vel upp fyrir xS þegar hún tók við af xB sem samstarfsflokkur Dýrsins að það er bara einn sem ræður. Og það er ekki samstarfsflokkurinn.

left by Uni Gislason . 26-10-2009 3:09 PM

Framsóknarflokkurinn var stofnaður 1916. Hann ber þess vegna ekki ábyrgð á heimsstyrjöldinni fyrri.

left by Björgvin Valur . 26-10-2009 2:45 PM

Altice er snarklikk. Hvað þarf maður að vera brjálaður til að gefa í skyn að fólk sem ekki deilir pólitískum skoðunum sínum eigi að vera tekið af lífi?!

Ekki mikið klikkaðari en þeir sem sjá Framsóknarflokkinn í öllu slæmu - jafnvel þó þurfi að teygja sannleikann til að fá það til að passa og gera raunverulega sökudólga (xD) stikkfrí.

Samt soldið klikkaðari. Bara ekki mikið.

left by Uni Gislason . 26-10-2009 2:38 PM

Þetta mundi alveg standast hjá þér, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að andstæðingar ESB eru upp til hópa öfgamenn. Máflutningur þeirra hefur oft á tíðum verð mjög grófur, og langt frá því að vera marktækur.

left by Jón Frímann . 26-10-2009 12:56 PM

Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá á mig bunu frá honum: http://altice.blog.is/blog/altice/entry/282032/

Þessi gæi er lasinn.

left by Kjartan Valgarðsson . 26-10-2009 3:30 AM

Ég held nú að hófsamir andstæðingar aðildar láti bullið í þessum köppum sem vind um eyru þjóta.

left by Björgvin Valur . 25-10-2009 10:25 PM

Loftur er gjörsamlega stjórnlaus maður. Hinsvegar er hann að eyðileggja málstað andstæðinga ESB núna á einu bretti, ásamt Jóni Vali. Þessir tveir menn eru að valda skaða á málflutningi andstæðinga ESB sem er svo mikill að þeir munu aldrei nokkurntíman ná aftur þeim til baka sem þeir fæla frá með öfgunum í sér.

Ég nenni ekki að eltast við svona vitleysinga. Þeir eru sjálfum sér verstir.

left by Jón Frímann . 25-10-2009 10:19 PM

Loftur lagði til fyrir nokkru að ég yrði hengdur upp í ljósastaur.:)

left by Egill . 25-10-2009 8:07 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER