Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Læknislaust í faraldri
Published: 7:10 PM GMT, 21-10-2009

Hérna á hinum afskekkta Stöðvarfirði höfum við ekki séð lækni í eina viku.  Ég veit um fólk sem liggur sárlasið heimavið og hefur verið rúmfast í nokkra daga og það bíður eftir símtali þess efnis að það geti hitt lækni á Eskifirði eða Reyðarfirði eða Fáskrúðsfirði eða einhversstaðar annarsstaðar einhverntíman bráðum.

Vonandi.

Hvernig væri nú ef Heilbrigðisstofnun Austurlands bryti odd af oflæti sínu og byði hinum brottvikna en marghreinsaða Hannesi lækni starfið sitt aftur og þar með myndi fjöldi lækna í Fjarðabyggð tvöfaldast.

Ég ætla ekki að taka afstöðu í máli HSA og Hannesar því ég þekki ekki málavöxtu; mér þætti bara vænt um það ef læknum á svæðinu myndi fjölga á meðan lífshættulegur faraldur gengur yfir og Hannes er góður og vel liðinn læknir.  Af sjúklingum alla vega.

Koma svo strákar!

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (0)

Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER