Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
Lög ríka fólksins
Published: 10:06 PM GMT, 15-06-2009

Manni kemur í hug að íslensk lög séu nokkurn veginn ónýt.  Að þau séu álíka brúkleg og innihaldslýsing á cheeriospakka þegar kemur að því að hafa hendur í hári stórglæpamanna.

Lalli Johns er nýdæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir eitthvað smáræði sem bliknar við hliðina á því sem nú opinberast fyrir okkur innan úr kreðsum hinna ofurríku og IceSave hönnuða.  Sjeika með óbragði.

Allt þeirra ógeðfellda brask virðist standast lög og hefur, samkvæmt fréttum, verið hvítþvegið af lögfræðideildum bankanna.  Reyndar hefur það verið lenska hér að þeir sem stela nógu miklu sleppa á meðan örvæntingafullir og ringlaðir smákrimmar fá að gista fangageymslur af minnsta tilefni.

Hver man ekki eftir manninum sem var eltur upp á Hellisheiði og handtekinn fyrir að hafa stolið einum vodkapela úr ríkinu í Hveragerði?  Gott ef hann var ekki dæmdur til fangelsisvistar - einn mánuð fékk hann ef ég man rétt.

Íslensk lög eru lög ríka fólksins.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (9)

ég mæli með að búa til lista af nöfnun yfir alla helstu fjársvikara, sem hafa STOLIÐ fjármunum(hvítflibbaglæponarnir) og senda í keðjubréfi, þarnæst eigi allir sem móttaka keðjubréfið að hringja í lögregluna og kæra ALLA þá sem eru á þessum lista fyrir fjársvik, ef lögreglan ekki bregst við með að setja kumpánana í varðhald og frysta innistæður þessara rakkarapakks samt allar aðrar eignir þessi líður hefur tranað að sér, hús, bíla etc., þá hefur lögreglan og RLR ekki lengur neitt að segja, því lögreglan er eiðsvorinn til að vernda Íslenska lýðveldið gegn innlendum sem útlendum fjandmönnum,.. það eru engar íkjur að kalla þetta sem þetta pakk hefur gert HIGH TREASON gegn Íslenska ríkinu. Eins og ég sagði áðan, ef lögreglan viðhefst ekkert, hafa þeir svikið þann eið og ættu ekki lengur að kalla sig lögrugluþjón, og ætti fólk heldur ekki að virða sem slíka lengur, ef lögreglan gerir ekkert verður FÓLKIÐ AÐ GERA ÞAÐ SJÁLFT.

bestu kveðjur H.H

left by H.H. . 1-07-2009 8:11 PM

Allt sem okkur hefur ekki dottið í hug að banna með lögum er leyfilegt. Minnir mig á nemandann sem í skólaferð í bíó skreið á bak við sýningartjaldið. Aðspurður um það hvers vegna hann hefði gert þetta, hvort hann vissi ekki að svona lagað gerði maður ekki, svaraði hann: "Það sagði enginn að þetta mætti ekki".

left by Snæbjörn . 16-06-2009 12:46 PM

Davíð sagði eitt og gerði annað. Þeir sem hlusta á hann hafa því kolranga mynd af manninum.

Ef hann hefði ekki lagt niður þjóðhagsstofnun hefðum við kannski fengið bankafréttir frá óháðum aðilum í stað þess að treysta á greiningardeildirnar. Ef hann hefði ekki lagt hundruðir milljarða í banka sem hann var löngu búinn að "spá og tilkynna" að færu dauðir hefði hrunið kannski orðið minna.

Ef, ef, ef...

left by Einar Jón . 16-06-2009 11:38 AM

Og hvað með það hvað Davíð segist hafa sagt? Hafði hann engin völd? Hversvegna gerði hann ekkert annað en að leiða þessa menn til áhrifa og valda með því að færa þeim banka á silfurfati og laga til lög og reglur svo þeir gætu hámarkað gróða sinn á kostnað þjóðarinnar?

left by Pétur . 16-06-2009 9:48 AM

Var ekki David Oddson alla tid ad vara vid tessum oreidumönnum? Vildi hann ekki fjölga folki i efnahagsbrotadeildinni? Tvi midur höfum vid engan alvöru stjornmalaleidtoga i dag. Rikisstjornin er mjög mattlaus. Tad verdur ad bretta upp ermar ef ekki a illa ad fara

left by Jon B G Jonsson . 16-06-2009 9:13 AM

Var ekki David Oddson alla tid ad vara vid tessum oreidumönnum? Vildi hann ekki fjölga folki i efnahagsbrotadeildinni? Tvi midur höfum vid engan alvöru stjornmalaleidtoga i dag. Rikisstjornin er mjög mattlaus. Tad verdur ad bretta upp ermar ef ekki a illa ad fara

left by Jon B G Jonsson . 16-06-2009 8:56 AM

Lög ríka fólksins....'oborganlegt ....'i bókstaflegri merkingu.

left by arnar . 16-06-2009 12:56 AM

Þegar siðlausir lögfræðingar eru farnir að viðurkenna að lögin m.v. lélegt siðferði þá fer maður að spyrja sig ýmsa spurninga :-o

left by ASE . 15-06-2009 11:42 PM

Uss mér varð óglatt af því að horfa á Sigurð G. glotta framan í okkur bjálfana og segja að þetta væru sérlög fyrir sérstaklega siðlausa menn.

left by Flóki . 15-06-2009 11:10 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER