Björgvin Valur - Bæjarslúðrið 

Þessi síða er vistuð í Bretlandi

Þjóðstjórn

Published: 9:10 AM GMT, 2-10-2008

Guðni Ágústsson vældi um helgina eftir þjóðstjórn og nú kemur í ljós að Davíð Oddsson gerði slíkt hið sama.

Nú væri auðvelt að setja saman góða samsæriskenningu þess efnis að íhald og fjós séu að plotta um yfirtöku ríkisins en ég held að sú sé ekki raunin.

Ég held að Guðni og Davíð hafi bara fyrir tilviljun hist einhversstaðar einir, segjum við hlandskálarnar á salerni Seðlabankans til að mála fallegan bakgrunn við þessa hugmynd, og ýmislegt borið á góma.

Þar á meðal þjóðstjórn. 

En hverju breytir það þótt allir flokkar verði kallaðir til stjórnarsamstarfs; hvaða fengur er í Guðna, Steingrími og Guðjóni Arnari?

Guðjón Arnar á sér þann draum að árið 2011 sé gengið í garð og hann laus úr úlfagryfjunni, Steingrímur óskar sér þess heitast að árið 1978 sé komið aftur og Guðni upplifir sig sem karakter í Njálu.

Endilega takið þessa gaura í ríkisstjórn; það verður bara skemmtilegt. 

Athugasemdir (3)

Þetta er eitt það heimskulegasta sem ég hef heyrt. Hvað á Guðjón Arnar, sem ekki getur einu sinni stjórnað sínum eigin örflokki, að leggja til málanna í efnahagsmálum? Eða Guðni, sem ekki virðist vera í neinum tengslum við 20. öldina, hvað þá hina 21.? Um hvað eiga þessir menn að vera sammála? Framsókn vill allt í einu í ESB núna þegar hún er komiin í stjórnarandstöðu, Frjálslyndir vilja helst ganga úr EES og vinstri grænir vilja hverfa til fortíðar.

Þetta sýnir bara að bæði Davíð og Guðni eru búnir að vera.

left by Kona . 2-10-2008 1:14 PM

Óðstjórn:

Davíð Oddsson Björn Bjarnason Halli Jó Dýralæknirinn Geir Haarde Ingibjörg Sólrún

left by Rómverji . 2-10-2008 11:06 AM

Guðni er akkúrat maðurinn sem okkur vantar til að stýra "fjár"málunum með dýralækninum Árna Matt

left by frú Birna . 2-10-2008 10:59 AM
Var það eitthvað sérstakt?