Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Þjóðremba Bjarna Ben
Published: 5:10 PM GMT, 27-10-2009

Mikill voðalegur þjóðernisrembingur er þetta nú annars í honum Bjarna Ben.  Hvernig dettur manninum í hug að segja á fundi Norðurlandaráðs að við Íslendingar höfum alltaf litið á Norðurlöndin sem eina fjölskyldu en hún hafi svo brugðist okkur þegar á reyndi?

Fóru ekki héðan baneitraðir útrásarapar til Skandinavíu og keyptu upp flugfélög, verslanir, hótel og sitthvað fleira til þess eins að sjúga út úr þeim allt fé og rúmlega það?  Sterling t.d.

Í besta falli geta hin Norðurlöndin litið á okkur sem fulla frænda sem braust inn í peningaskápinn og seldi úr honum það sem hann fann þar, fyrst við erum í fjölskyldulíkingunum.  Það er fullkomnlega skiljanlegt hvers vegna þau ákváðu að lána ekki fyrr en AGS væri búinn að samþykkja meðferðarúrræðin.

Voru það ekki danskir bankar og greiningaraðilar, dönsk blöð og fréttaskýrendur sem bentu all nokkru fyrir hrun á að það væri yfirvofandi?  Þeir sáu í gegnum útrásarapana sem komu frá Íslandi og fóru ránshendi um eigur þeirra.

Nei Bjarni Benediktsson, við eigum skilið hirtingu frá hinum siðmenntaðri hluta Norðurlanda.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (10)

Mikið er gaman að sjá hvað Svanni, Ólinn og fleiri ætla sér að hafa mikið rangt fyrir sér þegar litið verður um öxl í framtíðinni.

left by Pétur . 29-10-2009 8:48 AM

Vandlætning og hneysklið í Samfylkingarliðinu yfir því að Bjarni skuli hafa "dirfst" að setja ofan í hina svokölluðu "vini" okkar á Norðurlöndunum. Þvílík móðgun hjá manninum finnst ykkur í Svikafylkingunni í heilagri vandlætingu ykkar, að maðurinn skuli koma svona fram á þingi Norðulandaráðs.

Mér fannst þetta gott hjá Bjarna. Láta þessa yfirlætispáfa frá Norðurlöndunum heyra það þegar þeir augljóslega hafa brugðist okkur á ögurstundu. Þetta er nokkuð sem er geymt en ekki gleymt og einhvern tímann munu þeir sem harðast beittu sér gegn okkur fá að gjalda fyrir það. Og þaðsama gildir um meðreiðarpakk þeirra.

Undirlægjuhátturinn gagnvar AGS og ESb er algjör í þessu liði og það sama gildir um Samfylkinguna.

Í framtíðinni mun allur sá skaði sem Icesave-versalasamningarnir munu valda okkur, óumdeilanlega verða samtvinnaðir við Samfylkinguna. Samfylkingin mun aldrei geta þvegið það af sér þó svo að það verði löng biðröð við handvaskinn hjá þeim.

Vel gert, Bjarni. Láttu þetta lið heyra það !

left by Svanni Sig. . 28-10-2009 1:48 PM

"við eigum skilið hirtingu frá hinum siðmenntaðri hluta Norðurlanda. " Ertu að segja að þjóðin eigi þetta skilið? Er það svona sem Samfylkingin nálgast verkefnið!?

left by Þórður Ingi . 27-10-2009 11:59 PM

Já, forustumenn tveggja elstu stjórnamálaflokka landsins emja nú hæst yfir því ranglæti erlendra ráðamanna að heimta að íslendingar taki þátt að bæta erlendum fjárskaða þann er þeir urðu fyrir með að leggja fé inná íslenskan bankareikning - óskapnaðar sem óx í skjóli óhæfra hérlendra stjórnmála- og embættismanna.

Forustumenn þessa sömu flokka fannst réttlæti að beita almenningi í Írak hernaði fyrir þær sakir að sitja uppi brjálaðan einræðisherra - drápin skipta miljónum og eignaspjöllin ómæld, auðvitað jörmuðu hörðustu fylgismenn þessara flokka með sem sérstakir boðberar réttlætis.

Jón Hreggviðsson orðaði þetta einhvern veginn svona; vont er þeirra ranglæti en verra þeirra réttlæti.

left by Hrafnkell Ásólfur . 27-10-2009 9:32 PM

Endilega leyfum Bjarna að galopna sig fyrir framan norrænu ráðherrana - það gefur þeim innsýn inn í hugarheim klíkunnar sem hér réði öllu. En í guðanna á bænum hættið þessari meðvirkni um að þjóðin eigi skilið hirtingu, þurfi betrun o.s.frv. Eru ráðamenn og Björgólfarnir búnir að sannfæra ykkur um meðsekt ykkar vegna nokkurra flatskjáa og fellihýsakaupa? Það eru billeg rök til að falla fyrir þegar ljóst er að örfáir aðilar notfærðu sér aðstöðu sína til að ræna þjóðfélagið með hjálp lítillar en valdamikillar klíku.

left by TH . 27-10-2009 9:20 PM

Ég er ekki rétt að frændur okkur ættu frekar að fagna þar sem útrásavíkingarnir notuðu peninga sem þeir fengu í gegnum Icesave til að kaupa t.d. flugfélög, verslanir, hótel og sitthvað fleira á yfirverði. Nú sitja þessir aðilar á söluverðinu og geta keypt eignirnar til baka á skrapvirði úr gjaldþrota félögum. Held að þeir ættu að fagna útrásavíkingunum!

left by Tómas . 27-10-2009 7:46 PM

Bjarni er kjáni að spila slappa pólitíska leiki. Hann er svo innilega hrokafullur að halda að Íslendingar þurfi ekki að læra auðmýkt, ábyrgð og hógværð.

Norðurlöndin standa með okkur alla leið, á meðan sú leið er til betrunar.

left by Uni Gislason . 27-10-2009 7:44 PM

Hann er að gagnrýna samtengingu norðurlandanna á Icesave + Alþjóða gjaldeyrissjóðinum

AGS má alveg eins sjá um lánamálin svo lengi sem þeir blanda ekki saman öðrum ólíkum málum eins og lagalega óvissu um hvort íslenskir skattgreiðendur eigi að borga fyrir einkafyrirtæki eins og tryggingasjóð innistæðueigenda

left by ogs . 27-10-2009 6:29 PM

Gæti ekki verið meira sammála þér

left by ASE . 27-10-2009 5:56 PM

Finnst að þið í samfylkingunni ættuð bara að fara frá þessu landi sem þið þolið svona illa og notið hvert tækifæri til að gera lítið úr...

Svo er nú óþarfi hjá ykkur að feta í fótspor systurflokksins og bjóða öllum fyrrum Landsbankastarfsmönnum toppvinnu við hið opinbera...

left by Ólinn . 27-10-2009 5:52 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER