Hungur og vosbúð
Átti samtal við mann sem heldur því fram að ef á okkur skellur alvöru kreppa; ef allar verstu spár um afdrif hagkerfisins rætast, munum við drepast úr hungri og kulda í vetur.
Þessi maður hélt því fram að í allri alþjóðavæðingunni - öllum þjóðfélagsbreytingunum á undanförnum tveimur áratugum - hefðum við gleymt því hvernig á að sauma föt og framleiða matvæli í einhverju magni. Hann segir að við höfum glatað svo mikilli verkþekkingu á þessum tíma að þegar kreppan skellur á okkur, verði aftur komið árið 1808.
Við getum ekki lengur smíðað okkur áhöld og tæki til að lifa af, segir hann.
Ég held svei mér þá að hann hafi nokkuð til síns máls.
Athugasemdir (5)
Síðasta alvöru kreppa sem ég upplifði var á árunum 1950-1951, Það litla sem fékkst í búðum var skammtað með sérstökum skömmtunarmiðum á mann . Vöruúrvalið var hveiti, smjörlíki, smjör,sykur, rúmjöl, mjólk og brauð...ávextir og grænmeti var aðeins til í sögubókum með myndum. Og ég minnist þess að skyndilega varð allt smjörlaust í búðum og enginn vissi hvenær það kæmi aftur - kannski eftir einhverja mánuði, Þá gripu margir til þess ráðs að búa ti svokallaðan bræðing til að nota ofaná brauð. Bræðingur var búinn til úr tólg,lýsi og soðið í vatni...mikið helvíti þótti mér þetta vont...þá var kreppa.
eru Breiðdælingar eitthvað óhressir?
Ja hérna. Ég held að hann "Nafni" hér fyrir ofan hljóti að hafa farið öfugu megin fram úr rúminu í morgun! Þvílíkur skapofsi! Eða er þetta fjármálakrísan sem er farin að fara svona í sinnið á fólki? Að geta ekki tekið djóki og skemmtilegum vangaveltum án þess að missa sig í skapinu og ráðast á saklausa bloggara í sinni eigin geðvonsku. Er einhver að neyða blessaðan manninn til að lesa blogg yfirhöfuð?
Hvers lags ótrúleg vitleysa er þetta - þið bloggarar eruð nú meiri djöfulsins bjálfarnir. Í þeim breytingum á regluverki sem fylgja munu í kjölfar þessarar kreppu legg ég til að það verði einnig settar lágmarkskröfur um að bloggarar þurfi að sýna fram á að þeir standi að minnsta kosti jafnfætis börnum á fermingaraldri hvað gáfur og heilbrigða skynsemi varðar.

Veistu; þetta er alls ekki fjarri lagi. Þetta er þegar rætt m.a. fyrir westan okkur - í BNA. Þetta er bara staðreynd, sem ekki verður litið framhjá - og vel þess virði að ræða.