Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Óhóf og úrkynjun
Published: 7:11 PM GMT, 5-11-2009

Löngum hefur það verið nefnt til dæmis um sjúklegt óhóf og úrkynjun þegar Rómverjar stungu fjöðrum ofan í kok sér til að kasta upp svo þeir gætu borðað og drukkið meira.

Eftir fréttina á Stöð 2 nú áðan um óhóf bankastjórnenda í laxveiðiferðum; veislutjöld á árbökkum úti í móum, uppábúnir þjónar og lifandi tónlistarmenn, þá yrði ég ekkert hissa að heyra fréttir af óhófi líku því sem sagt er að Rómverjar hafi stundað.

Og enn eru þeir að, var okkur sagt í fréttinni, en núna heita laxveiðiferðir sérfræðikostnaður í bókhaldi ríkisbankanna okkar.

Sem er kannski skiljanlegt, því dauður lax getur örugglega kennt þessu liði heilmikið um bankarekstur, svona miðað við allt og allt.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (2)

Þetta minnir meira á aðalinn í Versölum á sínum tíma en óhófið í rómverjum. Marie-Thérèse kona Lúðvíks 14. sagði í forundran yfir því að pöpullinn ætti ekki fyrir brauði: "afhverju borða þeir þá ekki kökur?" Hún var hálshöggvin ásamt restinni af hálfsturlaðnum aðlinum í Frakklandi. Ég vona að það komi ekki til slíkra óhæfuverka á íslandi en ég er hræddur um að meira að segja hinir pollrólegu íslendingar gætu breyst í frakka fari þessum fréttum ekki að linna. Svo má deigt járn brína...

left by Þórður Magnússon . 5-11-2009 11:15 PM

Svo kjafta þeir ekki frá framlögum til stjórnmálaflokka. Ætli það sé ekki réttlæting Samfylkingar.

left by yours truly . 5-11-2009 8:40 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER