Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Guðsorð og lýsi
Published: 11:10 PM GMT, 28-10-2009

Þrátt fyrir hrun, niðurskurð og aðrar þrengingar í ríkisbúskapnum, ríður örlæti ráðherra ekki við einteyming.  Einkum og sér í lagi ráðherra sem koma úr landsbyggðarkjördæmunum þremur, þótt vissulega megi finna ráðherra úr reyknum mikla sem þjakaður er af örlæti og þá í garð landsbyggðarinnar.  Þeir mega ekkert aumt sjá og skúffurnar eru djúpar.

Fyrir örlæti ráðherra ferðast kórar um landið, minnisvarðar eru reistir, torfkofar hlaðnir, landbúnaðarskóli styrktur, réttir fylltar fé af fleiri en einni gerð, íþróttafélög fá aukabónus, ljósmyndara gert kleift að setja upp sýningu, skrúðgarðar laufgast, kvikmyndir eru gerðar, miðaldabátur fer á sjóbirting og Hveragerði blómstrar.

Hjartnæmast er þó að bláfátækur sóknarprestur norður í landi fékk peninga til að skrifa mastersritgerð og skólabörn í sókninni, raunveruleg sóknarbörn, fengu aura fyrir lýsi. Andleg og líkamleg vellíðan í fyrirrúmi þar.

Ég hef afturámóti alltaf kúgast af guðsorði og lýsi.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (4)

Það væri aumt að ræna öllum eignum kirkjunnar, taka yfir stjórn hennar og ákveða svo síðast að gera presta sjálfboðaliða. Það þarf að flengja kjánaprik sem koma með tillögur af þessu tagi.

left by Uni Gislason . 29-10-2009 1:23 PM

Tökum líka kortið af ráðherrunum.

left by Björgvin Valur . 29-10-2009 7:36 AM

Sparnaðarhugmynd. Breyta preststörfum í sjálfboðavinnu og nýta tóm fjárhús aftur sem guðshús.

left by Stefán benediktsson . 29-10-2009 12:25 AM

Svona eins og ég kúgast af pólitískri rétthugsun. Skil hvað þú meinar.

left by Uni Gislason . 29-10-2009 12:15 AM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER