Furður
Furður dagsins eru þegar svo miklar að ég yrði ekki hissa ef sjálfur himnafaðrinn stigi niður til jarðar fyrir miðnætti. Eða kæmi gólandi niður í fallhlíf með diskóljósum og glimmer í líkama Michael Jackson.
Ef einhver hefði sagt mér í morgun þegar ég vaknaði að í dag myndi ég heyra fréttir af barnalánum, kröfum fyrrverandi bankamanna um bætur fyrir svefnleysi, sýknudómi hæstaréttar í máli gamla stærðfræðikennarans míns gegn barnalánsfólkinu og beiðni Bjögganna um fyrirgefningu frá þjóðinni, hefði ég hrist hausinn og svarað: Je, ræt.
Heyri ég Thriller í fjarska?
Athugasemdir (6)
Bjöggarnir what? Þetta þarf ég að láta segja mér tvisvar. Síðbúið aprílgabb í október? :)
Sannleikurinn er lygilegur
"Beat-it".
Er nokkuð eftir sem kæmi manni á óvart lengur og tengt er bankaspillingunni? Hvar finnur maður þessa ósk bjöggana?
LOL - veit nákvæmlega hvernig þér líður - þó reyndar misst af fyrirgefningarósk Bjöggana - en var meira að segja nóg um án þess



Þetta með Bjöggana voru draumórar. :)