Framandi
Íslenskur almenningur, sagði Bjarni Ben á Alþingi í dag.
Hvurn fjárann er fólk sífellt að tala um eitthvað sem það þekkir ekki, eitthvað sem er þeim gjörsamlega framandi?
Hvað verður það næst; fer Árni Johnsen að tala um tónlist eða Jón Gunnarsson um ESB ?
Eða Höskuldur Þórhallsson um eitthvað.
Athugasemdir (6)
Ekki gleyma þér BV. Þú mátt ekki halla orði að stjórnarandstöðunni fyrr en þú hefur skilgreint hinstu rök alheimsins.
Það er tíma og orkusóun að hníta í stjórnarandstöðuna. Vandamálin eru mun nær. Þegar stjórnarflokkarnir geta komið sér saman um að vera samstíga, þá er færi á að kvarta yfir vitleysunni í Bjarna Ben (og Framsóknarmönnum auðvitað hahaha)
Þú ert ansi góður.
Meira af þessu. Það er gott að stinga á blekkingar- og hræsniliði náhirðar og hrunflokkanna Sfl. og Ffl.Já, auðvitað.
Ertu líka svona dónalegur í eigin persónu?



Já hvað verður næst spyrð þú Björgvin Valur ? Ætli það gerist ekki næst að þú greinir okkur frá því hvort Samfylkingin telst hafa launað Jóni Ásgeiri að fullu milljónatugina í kosningasjóðina þegar búið er að leyfa Jóni að halda fyrirtækinu með tilskipun frá Samfylkingunni til Kaupþings. Já hvað gerist næst í flokki spillingarinnar Björgvin Valur ? Þú ættir að upplýsa okkur um það, þekkir spillinguna manna best enda innanbúðarmaður í spillingarflookknum Samfylkingunni með óhæfa forsetisráðherrann.