Einhvers staðar milli ökkla og eyrna
Ég held ég nenni ekki að hlusta á annað viðtal við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra ef hann fer ekki að hætta þessu helvítis bölvuðu væli um hvað allt sé erfitt og að hann hafi tekið við þrotabúi og standi upp að öxlum í rústabjörgun. Hann og ríkisstjórnin öll.
Á meðan þetta er það eina sem við fáum að vita - ríkisstjórnin tók við þrotabúi og stendur í rústabjörgun; á meðan talað er til okkar í þessum og viðlíka frösum, væri ég alveg til í nýja og innihaldsríkari ráðherra.
Þær fara að verða svolítið þreytandi, þessar eilífu klisjur sem eru hannaðar til að stjórnmálamaður geti talað án þess að segja neitt og ég bíð enn eftir gagnsæinu og opnu stjórnsýslunni.
Ég lýsi eftir nýju og fersku þingmönnunum (öðrum en Borgarahreyfingarinnar sem hafa staðið sig með eindæmum vel það sem af er þingi) og þeirra skoðunum og þeirra sýn á framtíð landsins. Þeirra lausnum og þeirra nútímalegu stjórnarháttum.
Hvar eruð þið?
Klisjur og frasar - yfirbreiðslur - duga mér ekki því ég vil fá að vita hvur fjárinn er í gangi. Ræður AGS öllu, er þessi sögulega vinstri stjórn að gang erinda erlendra fjármagnseigenda, er þessi stjórn sem varð til eftir Búsáhaldabyltinguna ekki í neinum tenglsum við þjóð sína?
Hvað eruð þið að gera, hæstvirt ríkisstjórn og þingmenn og í hversu djúpum skít erum við í raun og veru, svona á skallanum frá ökkla til eyrna?
Ég vil vita það því framtíð mín og afkomenda minna veltur á því. Þetta er ekki einkamál ykkar.
Athugasemdir (3)
mikið er ég þér sammmála núna Björgvin Valur
Ætli það sé ekki svona rétt við hálsarmálið.



Sammála þér.... Innihaldslaust blaður en engar lausnir...