Björgvin Valur - Bæjarslúðrið 

Þessi síða er vistuð í Bretlandi

Fáfræði Jóns

Published: 10:10 AM GMT, 3-10-2008

Á bloggi sínu í dag, ber Jón Magnússon frjálslyndur saman Ísland, Túrkmenistan og Zimbabwe.  Gott og vel.

Lítum framhjá því að hann birtir mynd af einræðisherranum í Zimbawe í líki apa - Jón sér bara heiminn þannig og ekkert við því að gera.  En það er kaflinn um Túrkmenistan sem stingur í augu.  Þar segir, meðal annars:

"Eyðimerkurlandinu Túrkmenistan er stjórnað af forseta fyrir lífstíð semkallar sig Túrkmenabashi eða eða faðir þjóðarinnar. Hann gaf nýlega útsína þriðju ljóðabók og var útsending rofin og ljóðabókin lesin og húnvar samstundis sett á námskrá skólabarna í landinu."

Jón heldur svo áfram og lýsir stjórnarháttum Túrkmenabashi - í nútíð.

Sorrí Nonni beibí, en maðurinn dó í hitteðfyrra.

Athugasemdir (1)

Ég man ekki betur en Túrkmenbashi hafi sjálfur lýst því yfir á sínum tíma, að hann myndi lifa að eilífu. Jón hefur líklega verið með þetta í huga.

left by Hlynur Þór Magnússon . 3-10-2008 10:17 AM
Var það eitthvað sérstakt?