Björgvin Valur - Bæjarslúðrið 

Þessi síða er vistuð í Bretlandi

Eyjubloggarar í beinni og holan á Egilsstöðum

Published: 9:09 PM GMT, 26-09-2008

Sat inni á RÚV á Egilsstöðum áðan í föstudagsspjalli með Jóni Knúti Ámundssyni, nú fyrrverandi fréttamanni því þetta var síðasti dagurinn hans sem slíkur, og Einari Ben Þorsteinssyni Eyjubloggara  og bráðum fyrrverandi ritstjóra Austurgluggans. 

Þetta var undir lið sem kallast Spjall um fréttir og það er hægt að hlusta á samræðurnar með því að smella á þetta feita letur. 

Annars er það alveg merkilegt hversu erfitt er komast um miðbæinn á Egilsstöðum - hann er búinn að vera sundurgrafinn síðan elstu menn muna og virðist ætla að vera svoleiðis lengi enn.  Ég veit að það er verið að vinna eftir nýju miðbæjarskipulagi og að Róm var ekki byggð á einni nótt en þetta eru Egilsstaðir, for kræing át lád.

Mér sýndist ég sjá sömu andlitin gægjast upp úr sömu holunni og þegar ég ók hjá í byrjun sumars en það er sosem ekki að marka því ég er einstaklega ómannglöggur.

 

Athugasemdir (4)

Við ræddum einmitt þetta.

101 Breiðdalur er eitthvað svo eðlilegt þegar þú segir það, enda eru allir alminilegir vesturbæingar ættaðir úr Breiðdal.

left by Björgvin Valur . 26-09-2008 11:27 PM

Já, hvað ræddum við um HSA fyrir fjórum árum eða svo - ha? Annars má Breiðdalur alveg sameinast okkur í 101!

left by alla . 26-09-2008 11:21 PM

Abbó? Ha?

left by Björgvin Valur . 26-09-2008 10:34 PM

Björgvin, ég fer að hafa áhyggjur. Þú bloggar orðið meira um Jón Knút en ég.

left by Esther . 26-09-2008 10:32 PM
Var það eitthvað sérstakt?