Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Eitthvað annað
Published: 1:10 PM GMT, 26-10-2009

Hvernig er það eiginlega, eru álver virkilega það eina sem getur lyft okkur upp úr efnahagslægðinni og er öllu til fórnandi svo fleiri slík megi rísa?

Ódýrt rafmagn, landspjöll, mengun, þensla a la 2002 - 2008 og fleiri egg í sömu körfuna.  Viljum við að þrjú risafyrirtæki hafi íslenskan efnahag í höndum sér og geti í skjóli þeirrar stöðu farið að setja okkur afarkosti?  Þau munu gera það ef þau telja sig þurfa, við skulum ekki velkjast í vafa um það.

Hvers vegna gerum við eitthvað annað með ódýru rafmagni, svona eins og við höfum látið álverin hafa?

Skipasmíðastöðvar, skóverksmiðjur, úlpufabrikkur, farsímaverksmiðja, aukin vinnsla á afurðum úr sjó og sveit, prjónastofur, tölvuíhlutaverksmiður, saumastofur, skúringafötuverksmiðjur, sápugerð, fuglabúrafabrikka, ferðatöskuframleiðsla, húsgagnasmíði, ofnasmíði, málningarverksmiðjur, fleiri alþjóðlega skóla sem tengjast umhverfi okkar, reynslu og lífsskilyrðum; barnavagnagerð, tannkremsgerð, handklæðagerð, flösku- og krukkuverksmiðja, skráa- og lyklagerð, göngustafaframleiðsla og örugglega alveg hellingur til viðbótar.

Eitthvað af þessu er til, annað var til en hætti og sumt hefur ekki verið reynt hér og ef sauðnum mér kemur þetta í hug á nokkrum mínútum, býð ég ekki í hvað meðalgreindu fólki og þaðan af skarpara, gæti komið til hugar ef það leggur sig fram.

Ég er meira að segja viss um að það er hægt að gera peninga úr fjallagrasatínslu, þrátt fyrir háðuleg ummæli oft og tíðum um þá iðju.

Eigum við svo að gera okkur í hugarlund hvað það væri hægt að áorka miklu í ferðaþjónustu hér á landi ef ríkið legði greininni 30% af því sem það hefur lagt til undirbúnings fyrir stóriðju?

Við erum í gíslingu stóriðjuskyndilausna og það stendur vitrænni umræðu um aðra atvinnustarfsemi fyrir þrifum.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (5)

Vestfirðirnir hafa verið á kafi í þessu "eitthvað annað" síðustu árin. Árangurinn fer ekki á milli mála. Nú þufum við að gera ALLT sem getur aukið framleiðslu í þjóðfélaginu. Ekki sleppa einhverju vegna þess að það er ekki "inn". Auðvitað bæri betra að fá eitthvað annað stórt sem er RAUNVERULEGT þar sem álverin eru þegar orðiin óþægilega mörg en betlarinn á ekki marga kosti. Auknar fiskiveiðar (ekki kvótakónganna), meiri úrvinnsla, hamborgarar úr heimahráefni, leikjaframleiðsla eða skúringafötugerð. Við þurfum svona og allt hitt líka. Bygging álverksmiðju hindrar ekki á neinn hátt að önnur atvinnustarfsemi geti vaxið. Álver er ekki það eina sem getur lyft okkur upp úr efnahagslægðinni og getur það ekki eitt. En það hjálpar og hjálpar heilmikið.

left by Magnús . 28-10-2009 12:29 AM

Nú er komið nóg af álverum og tími á fleiri stoðir undir atvinnuveigina hér, og þá þarf að vera orka til staðar.

Við þurfum að gæta okkar á skammsýni og skyndilausnum þólitíkusa í héraði sem eru að hugsa um atvæði fyrir næstu kosningar.

Ónýtt orkan fer ekki frá okkur og við verðum að fá viðunandi verð fyrir hana, því með tímanum verður hún bara dýrmætari og fleiri munu standa í röðum til að kaupa hana.

left by Garðar Garðarsson . 26-10-2009 9:20 PM

Gott blogg og innblásið.

Eldmóðurinn slíkur að ég var næstum staðinn upp úr sófanum.

Held reyndar hægt væri að finna gríðarlegt magn af "einhverju öðru" ef fleiri væru jafn óhræddir að varpa fram hugmyndum.

left by baldur mcqueen . 26-10-2009 5:55 PM

Það er auðvitað til skammar að halda á frekar góðu og hreinu hráefni af fjöllum og úr sjó og geta ekki dottið neitt atvinnuskapandi í hug. Sum framleiðsla (EVEOnline) þarf ekki hráefni en flutningur hráefna er ódýr, smbr. Bauxit í ál, þannig að okkur skorti reingöngu þekkingu til að upphugsa, hanna, markaðssetja og framleiða eitthvað sem aðrir vilja kaupa. Af því að þú minntist á sauð þá er ég viss um að sauðarækt og kjötvinnsla því tengd er vannýttur möguleiki. Sá sem smakkar reykt sauðakjöt vill ekki vatnssósa lambalaæri framar.

left by stefan benediktsson . 26-10-2009 5:53 PM

takk fyrir þitt framlag til vitrænnar umræðu

left by birna . 26-10-2009 2:54 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER