Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
Íhald í dag
Published: 9:10 AM GMT, 21-10-2009

Björn Bjarnason vill að RÚV reki Egil Helgason.  Björn Bjarnason situr ekki lengur á Alþingi og ekki er hann ráðherra.

Væri hann ráðherra, hefðum við aldrei heyrt af þessum vangaveltum Björns, hvorki á blogginu hans né DV, því Egill hefði einfaldlega verið rekinn; Björn hefði togað í spotta hér og bjöllur þá hringt um gjörvalla Valhöll og útibú hennar í ríkisstofnunum og skömmu síðar frést að Agli hefði verið sagt upp störfum í sparnaðarskyni.

Þannig er jú Sjálfstæðisflokkurinn.

 

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (10)

Það að þriðjungur þjóðarinnar geti enn hugsað sér að kjósa hrunflokkinn er sambærilegt við það að þriðjungur þýsku þjóðarinnar hefði kosið þýska nasistaflokkinn að stríðslokum, þrátt fyrir helförina og þær hörmungar sem hann leiddi yfir þýsku þjóðina.

left by Yggur . 21-10-2009 7:43 PM

Vel mælt Margrjet, sjálfstæðisFLokkurinn er cosa nostra íslands

left by Yggur . 21-10-2009 7:32 PM

Það virðist gleymast í umræðunni að sjálfstæðisflokkurinn er að kjarna til ekki stjórnmálasamtök heldur glæpasamtök. Þess vegna heldur BB að hann hafi enn þau völd að láta reka Egil.

left by Margrét . 21-10-2009 12:13 PM

eru lögin um RUV ekki barn sinstíma sem ekki ber að faraeftir

left by Tryggvi . 21-10-2009 11:48 AM

Svo Björn vill reka Egil. Ég vil að Björn þegi. En það er engum manni hollt að fá allt sem hann vill.

left by Þorsteinn Úlfar Björnsson . 21-10-2009 11:05 AM

Ég átta mig ekki alveg á þessu innleggi þínu Pjotr, það er enginn að halda því fram að "drottningarviðtöl" eigi að fást eftir pöntun. Hins vegar er alveg ljóst að Silfrið uppfyllir ekki lagaskilyrði sem á að heita að Ríkisútvarpið búi við og það gerir fréttastofa RÚV ekki heldur. Þá er tvennt til ráða - breyta málflutningi stöðvarinnar eða breyta lögunum. Hvort leiðin er rétt skal ég ekki segja til um, en það er sjálfsagt að benda á þetta.

Fyrirsögn DV sem Björgvin virðist byggja sína bloggfærslu á er svo auðvitað bara skáldskapur, nema blaðamaðurinn sem hana skrifar sé illa læs og hafi í raun og veru misskilið Björn á þennan hátt.

left by Máni Atlason . 21-10-2009 10:34 AM

Já þetta er ferlegt ástand. Í stað þess að geta pantað "drottningaviðtöl", bullað út og suður um allt og ekkert eða sett ofan í við fréttamenn, .þar náhirðin að búa við það að Ríkisútvarpið Sjónvarp dirfist að tefla fram einstakling sem þorir að taka afstöðu og fer ekki leynt með það. Hvílík ósvífni !!! Hverng væri að Björn Bjarnason lærði að skammast sín fyrir sinn hlut í spillingartíma Sjálfstæðisflokksins og færi að haga sér eins og virðulegt gamalmenni.

left by Pjotr . 21-10-2009 10:15 AM

Magnús, eins og Máni sagði talar Björn hvergi um að reka eigi Egil. Hann er einfaldlega að gera þá eðlilegu kröfu til Egils að hann starfi í samræmi við þau lög sem gilda um Ríkisútvarpið. Er það virkilega til of mikils ætlazt?

left by Hjörtur J. Guðmundsson . 21-10-2009 10:07 AM

Þeir sem vilja lesa ummæli Björns fara náttúrulega á www.bjorn.is en þar segir hann: "Hér skal áréttuð sú skoðun, að hlutdrægni Egils Helgasonar í afstöðu hans til manna og málefna geri hann óhæfan til að stjórna sjónvarpsþætti um þjóðmál, eigi þátturinn að lúta lögum um ríkisútvarpið. Lögleysan í kringum þátt Egils, verður ekki afsökuð með því, að hann sé einhver öryggisventill fyrir almenningsálitið, sem annars brytist fram á enn hroðalegri hátt en í nafnlausri illmælgi á bloggsíðu Egils. Hver hefur heimild til að leysa Egil Helgason undan lögum um ríkisútvarpið? Páll Magnússon, útvarpsstjóri? Sé svo, ætti hann að sýna eigendum RÚV hana."

left by Magnús Björgvinsson . 21-10-2009 10:04 AM

Sæll Björgvin.

Hvar í ósköpunum vilt þú meina að Björn segi að segja eigi Agli upp störfum? Eini staðurinn þar sem það stendur er í fyrirsögn DV. Mér þykir líklegt að þarna hafir þú (og DV) eitthvað mislesið orð Björns.

left by Máni Atlason . 21-10-2009 10:01 AM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER