Ekkert pukur lengur, takk fyrir kærlega
Eina ferðina enn neitar opinber stofnun fjölmiðli um upplýsingar úr hruninu; nú vill Fjármáleftirlitið ekki sýna DV bréf sem hönnuðir Icesave sendu hollenska seðlabankanum rétt fyrir hrun.
Hvenær ætlar þetta fólk að skilja að það eiga ekki að vera nein leyndarmál lengur; að við viljum sjá opna stjórnsýslu? Það er algjört lágmark að við sem erum gerð ábyrg fyrir gjörðum þessara svindldindlanna, fáum að vita hvað gerðist.
Hofmóðuga embættismenn sem þverskallast við og liggja á upplýsingum sem okkur varðar, ber að reka samstundis.
Og áður en grátkór íhalds, fjóss og popúlista fara að væla um ömurlega ríkisstjórn, þá leyfi ég mér að fullyrða að hún stendur sig prýðilega að öllu leyti nema þessu; upplýsingagjöfin má vera meiri og stöðugri.
Við sitjum öll í sömu helvítis ógeðslegu súpunni.
Athugasemdir (3)
..."leyfi mér að fullyrða að hún stendur sig prýðalega með öllu..." held að þetta sé brandari ársins.....
Já einmitt... svipað eins og með "öll" skjölin úr ICEsave, já nema sum...
Og "ekki" verða gefnir upp skilmálar lánana frá norðurlandaþjóðunum... Þetta er frábært verk hjá þinni ylhýru stjórn, sem átti að vera mun betri en draslið þar á undan... en nei nei...... Hefur sannast best að pólitíkusar eru allir eins... bara með mismunandi staf fyrir framan sig... Skítapakk, allir með tölu...


Það er allt látið eftir þér.