Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
23
24
25
26
2728
2930
ASÍ
Published: 1:10 PM GMT, 22-10-2009

Ég botna ekkert í ASÍ og hef reyndar ekki gert lengi.  Nokkru fyrir góðæri fóru þessi samtök að breytast úr hagsmunabandalagi launafólks, raunverulegum samtökum alþýðufólks, í eitthvað óútskýranlegt fyrirbrigði í fílabeinsturni sem gleymdi uppruna sínum með öllu.

Atvinnurekendur fengu nokkurveginn frjálsar hendur á vinnumarkaði þegar ASÍ breyttist úr öflugum talsmanni launafólks í umsýslufélag með lífeyrissjóðum.  Eða eitthvað; það hvarf okkur sjónum.

Margvísleg brot hafa verið framin gegn launafólki á undanförnum árum, nægir að nefna þar Kárahnjúka, en ASÍ aðhafðist ekkert; ekki mátti stöðva framkvæmdirnar, kjarkinn skorti til að hóta verkföllum og samtökin sneru sér að verðkönnunum í staðinn.

Hér skal þó viðurkennt að einstaka félag innan ASÍ hafði sig í frammi og þá aðallega félög iðnaðarmanna.

Nú hótar ASÍ uppsögn kjarasamninga og hafa samtökin gengið í lið með Samtökum atvinnulífsins í einhverju stríði gegn vinstri- og umhverfissinnuðum umhverfisráðherra sem vill fara hægt í uppbyggingu stóriðju.  Vegna raflínu sem enginn veit hvar á að stinga í samband, hótar ASÍ að segja upp kjarasamningum og auka enn á glundroðann og upplausnina.

Hvar voru stóru orðin og hótanirnar þegar verkamenn við Kárahnjúka máttu þola vosbúð og fá laun sem ekki voru í samræmi við íslensk lög eða kjarasamninga?  Hvar var ASÍ þegar fiskvinnslufyrirtækjum var lokað hverju á fætur öðru, hringinn í kringum landið fyrir nokkrum árum síðan?  Hvar var ASÍ bara svona yfirleitt eftir circa 1995?

Ég get ómögulega munað það.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (4)

Það væri ekki óklókt hjá þér að lesa lög frá hinu há Alþingi um verkföll og vinnudeilur. Það mætti nefnilega halda þegar maður les þau að þau hafi verið samin af Viðskiptaráði og SA. Það er þannig samkvæmt þessum lögum að það er langur og niðurnjörvaður prósess að hóta og fara í verkföll. Og ef verkalýðsforustan svo mikið sem hugsar VERKFALL er hægt að lögsækja hana og fá háar skaðabætur. Þessvegna þurfum við vopn. Viltu prófa að hringja í Hugó Chavez?

left by Þorsteinn Úlfar Björnsson . 23-10-2009 9:57 PM

Ég skil ekki hvernig þér sást framhjá því að klína þessu einhvernveginn á Framsóknarflokkinn. Mínusprik fyrir skort á málefnalausum fordómum.

left by Uni Gislason . 23-10-2009 2:31 AM

Allt satt og rétt en mér fannst alltaf sem ASÍ þyrði ekki í alvöru hörku vegna þessa, þótt einstaka félög og trúnaðarmenn djöfluðust úti á akrinum. Þess vegna finnst mér hart að hlusta á tal um uppsagnir kjarasamninga núna.

left by Björgvin Valur . 22-10-2009 7:47 PM

http://gudmundur.eyjan.is/2009/10/joremba-landsvirkjunar.html

left by Guðmundur Gunnarsson . 22-10-2009 7:24 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER