Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
1617
18
19
20
21
22
232425262728
2930
Aðgerðir
Published: 12:06 PM GMT, 23-06-2009

Þann 1. september næstkomandi á að þjóðnýta allar fiskveiðiheimildir í landinu og gefa svo fiskveiðar nokkurnveginn frjálsar.  Setja takmörk fyrir því hvað veiðarfæri má brúka hvar og hvenær en öllum á að vera frjálst að róa til fiskjar og selja aflann hæstbjóðanda, innanlands eða utan.

Það á að fresta öllum meiriháttar samgönguframkvæmdum; Norðfjarðargöngum, Bakkafjöruhöfn og Héðinsfjarðargöngum svo ég nefni dæmi.  Allt í lagi sosem að klára Bolungarvíkurgöng því þau leysa af hólmi lífshættulegan veg.

Aldrei þessu vant er ég sammála Kára Stefánssyni og vil að tónlistarhúsið verði sett á salt í bili og ef endilega þarf að byggja eitthvað, ættu það að vera öldrunar - og eða sjúkarstofnanir um allt land.

Það má ekki skerða kjör öryrkja eða aldraðra um einn eyri, heldur á að hækka skatta á alla sem hafa meira en 300.000 krónur í laun.

Um leið á að handtaka allt útrásarliðið og hirða eigur þess upp í skuldir, lækka vexti niður fyrir 5%, samþykkja IceSave samkomulagið og endurskoða samstarfið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Það finnst mér.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (7)

Ekki jafn einfalt og ályktunarhæfni þín.

left by Björgvin Valur . 25-06-2009 4:48 PM

Lífið er greinilega dásamlega einfalt á Stöðvarfirði.

left by Teitur . 25-06-2009 12:59 PM

Rétt upp hendi sem vilja Björgvin sem einræðisherra. Ekki kannski fyrirmyndar tilhögun, enn hlutirnir kæmust þó í verk!

left by Finnur . 24-06-2009 1:58 PM

Ég hef ekki gáð Magni, en ef þú leggur músarbendilinn yfir klukkuna í hægra horninu neðst, sérðu það.

left by Björgvin Valur . 23-06-2009 4:23 PM

Er eitthvað verra að hafa föstudag alla daga en sunnudag?

left by stefán benediktsson . 23-06-2009 4:23 PM

Það er ekki föstudagur er það ?

left by Magni Þór . 23-06-2009 4:15 PM

og hvar er Samfylkingin? Ekki þorðu þeir að taka á þessu meðan Geir gunga var í forsvari með þeim og nú er Samfylkingin í forsvari og ekkert gerist...engar handtökur!

left by Friðrik Sig . 23-06-2009 2:22 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER