Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
Aftur til fortíðar
Published: 7:07 PM GMT, 1-07-2009

Úff, hvað mér létti við að heyra þær fréttir að þjóðin vilji fá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks aftur.  Svei mér þá gott, því þá verður allt eins og það var.

Bjarni og Sigmundur samasem Davíð og Halldór. 

Engir kommatittir eða kratadindlar að láta rannsaka bankahrunið eða semja við þessa helvítis útlendinga sem vita ekki að Íslendingar eru undantekningin frá reglunni um að það sé ekkert til sem heitir ókeypis hádegismatur.

Að Íslendingar séu svo sérstakir að meira að segja náttúrulögmálin ná ekki yfir þá, hvað þá manngerð lögmál um samskipti siðmenntaðra þjóða.

Jamm.  Endilega rúllið fram ríkisstjórn Sjálfstæisflokks og Framsóknarflokks og látum sem hún hafi aldrei farið.

Akkúrat það sem þjóðin þarf á að halda núna.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (15)

Fyndið að sjá hvað JGH er alltaf skemmtilega pirraður hérna á þessu bloggi. Við hin hljótum að vera að gera eitthvað rétt...

left by Systa . 3-07-2009 11:44 PM

JGH hvaðan heldurðu að 45ma komi? Auðvitað er bara verið að taka fyrirfram með þessu en það er svo sem alveg á pari við gæfulega efnahagsstjórn D hingað til. Það kom nefnilega til baka og beit D í rassinn þetta með að vinstri menn kunni ekki með peninga að fara. Það voru, þegar allt kom til alls, hægri mennirnir sem kunnu það ekki.

left by Einar . 3-07-2009 11:41 AM

Blessaða fólk.... Hvað hefur þessi ríkisstjórn gert - hefur VG staðið við stóru orðin sem þeir lofuðu kjósendum sínum fyrir kosningar. Það virðist sem þið gleymið því að þessi ríkisstjórn er búin að sitja í 5 mánuði. Skattahækkanir á meðal 4 manna fjölskyldu eru 90 þús kr á mánuði !!! Þeir neita að hlusta á allar þær tillögur sem góðar eru við viðreisn atvinnulífs og heimila sbr tillaga Sjálfstæðismanna um breytingu á greiðslum í lífeyrissjóði (þýðir ca 45 ma í ríkissjóð á ári án þess að almenningur finni fyrir því).

Svo rísið þið upp - fólkið sem þoldi ekki valdið og valdhafana og hneykslist á samborgurum ykkar fyrir að vera búið að gefast uppá ráða - og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar - þið eruð orðnir varðhundar valdhafanna nr.1.... Svona er þetta börnin góð - byltingin étur börnin sín..... Sleppið svo skítaskotum og níð á fólk eins og Heiðu sem hefur aðrar skoðanir en þið....gerið bara lítið úr ykkur, en sýnir kannski um leið hversu málsstaðurinn er veikur þegar að þetta eru einu rökin sem hægt er að færa fram... eins og "Hólmsteinn Kiljan" og fleiri gáfuleg komment....

left by JGH . 2-07-2009 11:10 AM

Úff, ef þeir koma aftur segi ég upp og flyt úr landi. "Góðærið" var aldrei til í huga mínum, ekki þegar maður sat á skólabekk í kerfi sem þetta fólk hafði nauðgað í áraraðir. Upp á náð og miskunn tengslanetsins og fjölskyldunnar um tryggt leiguhúsnæði (n.b. ég var heppinn) sem passaði inn í fjárhagsáætlanirnar. Þegar veikustu hópar samfélagsins voru troðnir niður í svaðið. Er fólk virkilega svo blint að það trúir því að þessum flokkum sé umhugað um samfélagið?

left by Anna . 2-07-2009 10:15 AM

Það var nú enginn meirihluti hjá D og B í þessarri könnun. Það var Borgarahreyfingin sem var að ná oddasætinu.

left by Héðinn Björnsson . 2-07-2009 12:57 AM

Ég hélt að Íslendingar gætu ekki orðið heimskari en þeir voru orðnir. En nei... fáum bara D og B aftur! Heimska Íslendinga er eins og alheimurinn. Óendanlega stór.

left by Arnar . 2-07-2009 12:23 AM

Manni fallast hendur þegar maður sér hversu margir falla fyrir ruglinu í honum Sigmundi Davíð!!, skilur fólk virkilega ekki hvað er í gangi? Annars mátti maður svo sem búast við þessu, fólk sem kaus D og B eftir gjörspillta einkavæðingu ríkisbankanna er bara ekki í lagi !!!

left by Kalli . 1-07-2009 11:12 PM

Er nú Hólmsteinn Kiljan farinn að skrifa undir nafninu "Heiða"?

left by Systa . 1-07-2009 11:06 PM

Kjaftstopp!!! Er virkilega til fólk sem hugsar svona? eins og Heiða?

left by DisaP . 1-07-2009 11:00 PM

Ótrúlegt að heyra þetta í fréttunum í kvöld. En svo sér maður "comment" frá svona snilling eins og Heiðu og Jó og þá skilur maður. Akkúrat þetta með að hækka skatta og svona leiðindi í staðinn fyrir þessa "góðu" tíma sem við lifðum þegar alvöru ríkisstjórn var við völd.

left by Einar . 1-07-2009 10:11 PM

Það er svona líka gaman að fólki eins og "Heiðu".

Það er fjöldinn allur af fólki af sama sauðarhúsinu, fólk sem skilur engan veginn orsök og afleiðingu heldur man bara afleiðinguna sem reynt er að takast á við um þessar mundir.

"Heiða" og hennar líkir gleyptu bara strokleður og strokuðu út orsökina og muna sennilega ekki lengra til baka en ca eina viku.

Þetta allt er nú að komast á það stig að það verður hreinlega að gera heiðarlega tilraun til að skipta um þjóð, það er að skipta öllum sem gleypt hafa strokleður út.

Góðar stundir "Heiða" og aðrir strokleðurs gleypandi Íslendingar

left by Páll Kárason . 1-07-2009 9:56 PM

Ég er viss um það væri skárra en þessi ráðalausa ríkisstjórn sem nú situr.

left by jó . 1-07-2009 9:52 PM

En það er Sjálfstæðisflokknum að kenna.

left by Björgvin Valur . 1-07-2009 9:45 PM

mikið rétt Björgvin Valur þjóðin vill fá aftur fólk sem getur stjórnað landinu ekki krata og komma með handónýta Jóhönnu við stýrið. Okkur leið vel reyndar leið okkur flestum bara mjög vel síðustu áratugi meðan framsókn og Sjálfstæðisflokkur stjórnuðu þjóðinni en nú er allt heft í spennitreyju hafta og ofurskatta eftir að Jóhanna og Steingrímur tóku við og hafa ekki hugmyndaauðgi í neitt nema skattahækkanir. Ekki reyna þá aulavörn Björgvin Valur að kenna Sjálfstæðisflokknum um hvernig komið er fyrir þjóðinni það voru ytri aðstæður og glannalegir einstaklingar sem þar áttu hlut að verki þar með talið helsti stuðninsaðili Samfylkingarinnar Jón Ásgeir og Baugur.

left by Heiða . 1-07-2009 9:41 PM

Jamm, þjóðin er í þessum ham í dag...

left by Gísli Baldvinsson . 1-07-2009 9:06 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER