Afskriftir og uppskipti
Jóhanna Sigurðardóttir telur að bjóða eigi út stór fyrirtæki sem komin eru í þrot og lenda í höndum bankanna og við blasa afskriftir lána til að bjarga fyrirtækjunum. Hún segir ekki sjálfgefið að gömlu eigendurnir haldi fyrirtækjunum eftir margra milljarða skuldafslátt.
Þessu er ég sammála og ég vil ganga lengra. Mér þætti bara allt í lagi að fyrirtækjum eins og Högum yrði skipt upp í frumeindir sínar.
Hagkaup, Bónus, 10-11, Bananar, Útilíf, Debenhams, Karen Millen og hinfyrirtækin þrettán sem eru eign Haga mætti alveg selja út úr móðurfélaginu og slá þar með a.m.k. tvær flugur í einu höggi.
Bankinn fengi eitthvað upp í skuldir Haga og ef séð væri til þess að enginn fengi að eignast nema eitt fyrirtækjanna, beint eða óbeint, yrði samkeppnissjónarmiðum gert hærra undir höfði en áður hefur þekkst á Íslandi.
Fyrir nú utan gagnsæið.
Athugasemdir (3)
Ég er alveg sammála ykkur krötum með þetta Björgvin, auðvitað á að bjóða upp þessi fyrirtæki og ríkisbankarnir fá eitthvað upp í veð og lánin. Það er ekki bara verslunar og þjónustu fyrirtæki sem hafa rúllað yfir og bankarnir halda lífi í nefna má iðnaðar og sjávarútvegsfyrirtæki svo sem Þorbjörn hf í Grindavík nær væri að búta hann upp og selja í pörtum, skip, fiskvinnslu tæki og kvóta.
"Jóhanna Sigurðardóttir telur ..."
Já, en hvað hyggst ríkisstjórn Samfylkingar og Vg. fyrir? Að láta skeika að sköpuðu eða brjóta upp fákeppnisokrið?


Algjörlega sammála þér Björgvin, eins og oft áður.