Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Familía
Rúnturinn
Pólitík
Áhugavert
Bloggdagar
««Nov 2009»»
SMTWTFS
1
2
3
4
5
6
7
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
Afritað og klínt
Published: 8:06 AM GMT, 25-06-2009

Austurglugginn segir í frétt, eða öllu heldur óútskýrðri fréttatilkynningu, að fasteignamat á Austurlandi hafi hækkað um 4,6% og í Fjarðabyggð, í hverja heimaþorp mitt Stöðvarfjörður er innlimað, hefur það hækkað um 4,8%.

Ég fékk seðil inn um bréfalúguna í vikunni og tölurnar á honum sögðu mér að hver fermetri í húsinu mínu væri um fimmtíu þúsund króna virði en það sýnist mér vera lækkun frá því ég lét meta húsið fyrir um þremur árum síðan.

Í frétt Austurgluggans eru töflur sem eiga að sýna þessa hækkun fasteignaverðs en töflurnar eru án skýringa; það kemur hvergi fram fyrir hvað tölurnar í þeim standa.

Er t.d. sama hækkun á fasteignaverði á Mjóafirði og á Reyðarfirði sem eru innan sama sveitarfélags eða hefur ef til vill orðið lækkun og hækkun einhversstaðar í sama sveitarfélaginu, en þau eru ansi víðfem og fjölbreytileg innra.

Forvitnin er greinilega ekki að plaga þau á Austurglugganum.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (0)

Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Hrunið
Stökkpallar
Fréttir
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER