Að fá helmingaskiptin í hnakkann
Samningurinn um IceSave þjófnaðinn er vondur en bjóst einhver við því að hann hefði getað orðið góður?
Mér þykir vægast sagt ógeðfellt að horfa upp á sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hlaupa upp til handa og fóta á Alþingi og víðar, og gagnrýna samninginn eins og þeir og þeirra flokkar hafi engan hlut átt að þessu máli.
Við skulum aldrei gleyma að það voru Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sem gáfu villidýrunum bankana og leyfðu þeim að gera við þá það sem þeim sýndist. Það voru þessir flokkar sem opnuðu hýenubúrið og hleyptu skepnunum út. Skáru allt eftirlit niður í nokkurnveginn ekki neitt og plöntuðu útvöldum geldingum sínum á alla pósta.
Og vissulega brást Samfylkingin líka á þeim mánuðum sem hún sat með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn.
En það er næstum því sorglegt að horfa upp á framsóknarmennina og sjálfstæðismennina gera sig að fíflum með málflutningi sínum því það er verið að reyna að hreinsa upp skítinn eftir þá.
Þegar maður hefur ferið inn í hús nágrannans og drullað á stofugólfið hans er maður líklega um leið að dílíta sér ef jólakortalistanum hans og getur ekki vænst hefðbundinnar sérmeðferðar þaðan í frá.
Jamm. Við erum að taka afleiðingum þeirra ákvarðana Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að gefa brengluðum fjárhættuspilurum bankana okkar og leyfa þeim síðan að þjóna fíkn sinni eftirlitslaust. Innanlands sem utan.
Þeir gáfu vinum og kunningjum eigur þjóðarinnar; þeir skiptu þeim til jafns á milli styrktaraðila sinna og nú erum við í þessum hyldjúpa forarpytti; þessum ógurlegu afleiðingum gjörða þeirra. Skuldadagar hafa runnið upp.
Helmingaskiptin hafa nú farið sem bjógverpill í heilan hring og hæft þjóðina í hnakkann.
Held að þingmenn íhalds og fjóss ættu að spara stóru orðin í bili og sýna þjóðinni eilitla virðingu og auðmýkt.
Athugasemdir (10)
Ég hef gagnrýnt Samfylkinguna oft og harkalega. Og á eftir að gera það aftur, er ég viss um. Á meðan ég geri það, frábið ég mér heimskulega þvælu um varðhunda frá þér, Gunnlaugur Fr.
Þessi pistill ber mikinn blæ skotgrafastagls íslenskrar stjórnmálaumræðu. Það hefur verið mikil leynd á samningunum sem og öllu ferlinu, og margar heiðarlegar og gildar spurningar og athugasemdur hafa verið lagðar fram varðandi þessi mál. Það er ekkert óeðlilegt við það. Það er mikilægt að reyna að horfast í augu við hvernig fer ef allt fer á versta veg. Það er mikilvægt að vinstriflokkarnir hafi allt upp á borðum og treysti sér til að taka þátt á opinni umræðu um þessi mál. Kerfiskarlaleg orðræða núverandi stjórnarflokka líkist um of orðræðu hrunstjórnarinnar.
Menn verða að passa sig á að detta ekki í varðhundsstöðu fyrir sitt lið. Nóg er af þeim. 'Treystið-okkur-því-við-vitum-hvað-við-erum-að-gera' stjórmálin ganga ekki lengur.Björgvin Valur þú ert með mjög sérstakan og reyndar einstakan reynsluheim sem þú byggir skrif þín á sbr eftirfarandi setningu úr skrifum þínum "Þegar maður hefur ferið inn í hús nágrannans og drullað á stofugólfið hans er maður líklega um leið að dílíta sér ef jólakortalistanum hans og getur ekki vænst hefðbundinnar sérmeðferðar þaðan í frá." Nú spyr ég, gerirðu þetta oft sem þú lýsir þarna að þú gerir í stofu nágrannans ?
Þá skulum við heldur aldrei gleyma að það voru VG og Samfó sem innsigluðu eymdina. Ok?
Af fjórflokkunum eru allir jafn mikið á kafi í þessari drullu. Það eru aðeins harðir flokksdindlar sem sjá þetta einhvernveginn öðruvísi.Við megum aldrei gleyma að það voru Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem komu okkur á þennan punkt.
IceSave samningurinn er vondur.Ég veðja kippu á að Björgvin svari með einnar setningar níði eða háði
Það er nú út í hött að lesa þetta !
Hver má gagnrýna þennan skaðræðissamning sem ég hvet þig til að lesa ef þú ert ekki búinn að því ! Hættu að dæma fólk eftir flokkslínum, það er ekkert öðruvísi en að dæma það eftir kynþætti eða kyni ! Hvergi hefur endurnýjun átt sér stað í gömlu fjórflokkunum eins og í Framsókn! Hvaða ábyrgð bera Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Eygló Harðardóttir, Höskuldur Þórhallsson, Gunnar Bragi, Gunnar Ingi, Vigdís Hauks, Gummi Steingríms á einkavæðingu bankanna fyrir áratug síðan ! Reyndu að koma málefnalega fram en ekki með hatursáróður gegn góðu fólki sem þú þekkir ekkert á grundvelli stjórnmálaskoðanna! Hættu að dreifa athyglinni frá nútímanum og framtíðinni með því að reyna að ausa aur yfir heiðarlegt fólk sem hefur fullan rétt á að standa á sínum skoðunum þó að þær séu ekki þær sömu og þú hefur ! Farðu að ráðast á málflutning þeirra en ekki persónur þeirra ! Ég vil sjá næstu færslu hjá þér fjalla um Icesave samningaferlið og hvort að þú sért fylgjandi eða á móti... tökum umræðuna upp úr drullupollinum... og fara að snúmast um það sem skiptir okkur öllu máli í dag.. það er hvernig við getum haldið áfram að lifa hérna í velferðarþjóðfélagi... og það gerum við ekki með því að vera arðrænd af nýlenduveldum með stuðningi krata og VG !!!Það er vissulega erfitt að hlusta á framsókn og sjálfstæðisflokkinn drulla yfir þá sem eru að þrífa skítinn eftir þá. Samningurinn er hins vegar orðinn opinber og þegar maður les hann er manni ljóst að hann er hrikalegur, þarf engan stjórnmálamann til að segja fólki það. Þegar upp kemur ágreiningur um mál er best að skjóta þeim fyrir dómstóla en líkast til hefði það áhrif á umsókn samfylkingarinnar um aðild að evrópusambandinu og því verið ákveðið að nýta ekki þann rétt til að styggja ekki okkar nýju húsbónda þannig að okkur yrði úthýst úr nýja kofanum okkar.
hver ma tha gagnryna samninginn ?



Vissulega er ábyrgð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks mikil. Samt hafa þessir flokkar (ásamt fjölmörgum öðrum) sett fram spurningar og athugsemdir sem þarf hreinlega að svara málefnalega en ekki með flokkslínuskætingi ef ég má nota það orð. Það eru of miklir hagsmunir í húfi fyrir sandkassaleiki.
Ég sagði ekki að Björgvin Valur væri varðhundur, einungis að það þyrfti að passa sig vel á sjálfsritskoðun flokkslínunnar. Við höfum vítin til að varast þau.